Frumfylki
Útlit
Frumfylki er, í stærðfræði, fylki sem gera má að einingarfylki með einni línuaðgerð. Frumfylki eru notuð í ýmsum útreikningum, til dæmis í LU-þáttun.
Einkenni frumfylkja
[breyta | breyta frumkóða]- Öll frumfylki eru andhverfanleg og andhverfa þeirra er frumfylki.
- Ef að A og E eru fylki sem hægt er að margfalda saman, og E er frumfylki, þá má beita sömu línuaðgerðum á A og beitt var á E til þess að gera frumfylkið úr samsvarandi einingafylki, og er fylkið EA niðurstaðan úr þeim línuaðgerðum.
- Hægt er að rita öll andhverfanleg fylki sem margfeldi frumfylkja.