Fiskveiðaöld
Útlit
Saga Íslands | ||
Eftir tímabilum | ||
---|---|---|
| ||
| ||
| ||
Eftir umfjöllunarefni | ||
Fiskveiðaöld er tímabil í sögu Íslands sem nær frá 1300 til 1550. Þorkell Jóhannesson, sagnfræðingur, stakk upp á þessu heiti til aðgreiningar frá því sem hann kallaði landbúnaðaröld og náði frá 930 til 1300. Þetta tímabil, sem Björn Þorsteinsson skipti í norsku öldina, ensku öldina og þýsku öldina eftir helstu viðskiptaþjóðum Íslendinga, einkennist af auknu vægi verslunar og útflutnings sjávarafurða vegna aukinnar eftirspurnar í Norður-Evrópu og samfara því stóraukinni útgerð Íslendinga og vexti verstöðva. Helstu útflutningsvörur á þessu tímabili voru skreið og lýsi, en líka vaðmál, brennisteinn og fálkar.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Jón Þ. Þór, Saga sjávarútvegs á Íslandi: 1. bindi Geymt 24 október 2020 í Wayback Machine, Hólar, Akureyri, 2002.