Borís Nemtsov
Borís Nemtsov | |
---|---|
Бори́с Немцо́в | |
Varaforsætisráðherra Rússlands | |
Í embætti 17. mars 1997 – 28. ágúst 1998 | |
Forseti | Borís Jeltsín |
Forsætisráðherra | Víktor Tsjernomyrdín Sergej Kíríjenko Víktor Tsjernomyrdín (starfandi) |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 9. október 1959 Sotsjí, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum |
Látinn | 27. febrúar 2015 (55 ára) Moskvu, Rússlandi |
Stjórnmálaflokkur | Lýðveldisflokkur Rússlands (2012–2015) |
Maki | Janna Nemtsova |
Háskóli | Ríkisháskólinn í Nízhníj Novgorod |
Undirskrift |
Borís Jefímovítsj Nemtsov (rússneska: Бори́с Ефи́мович Немцо́в; 9. október 1959 – 27. febrúar 2015) var rússneskur vísindamaður og stjórnmálamaður. Ferill hans gekk vel á tíunda áratugnum undir stjórn Borísar Jeltsíns en frá árinu 2000 hafði hann verið opinskár andstæðingur Vladímírs Pútíns.[1] Hann var skotinn og dó í febrúar 2015 vegna skoðana sinna til stuðnings rússnesku lýðræði á brú nálægt Kreml og Rauða torginu í Moskvu.
Talið er að stuðningsmenn Pútíns hafi staðið bak við dráp Nemtsovs, en Pútín hafði opinberlega fordæmt morðið.[2] Áður en hann var drepinn hafði Nemstov verið að skipuleggja mótmæli gegn Pútin og stefnu hans í sambandi við stríð Rússlands í Úkraínu.[2] Hann hafði sagt nýlega í viðtali að hann óttaðist um að Pútín myndi reyna að drepa hann.[2]
Fimm téténskir karlmenn voru síðar handteknir fyrir aðild að morðinu á Nemtsov. Einn þeirra, Zaúr Dadajev, hafði verið háttsettur í einni af hersveitum Ramzans Kadyrov, forseta sjálfstjórnarlýðveldisins Téténíu.[3] Dadajev játaði á sig morðið og var dæmdur í 20 ára fangelsi árið 2017.[4]
Árið 2022 gáfu rannsóknarblaðamenn Bellingcat, The Insider og BBC út niðurstöðu rannsóknar þar sem staðhæft var að útsendarar leyniþjónustunnar FSB hefðu fylgst með ferðum Nemtsovs í heilt ár áður en hann var myrtur.[5]
Áður en hann var drepinn var Nemtsov samformaður í Lýðveldisflokki Rússlands, meðlimur í héraðsþinginu í Jaroslavl og einn leiðtoganna andstæðingahreyfingunnar Solidarnost.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Nemtsov skotinn til bana“. RÚV. 27. febrúar 2015. Sótt 1. mars 2015.
- ↑ 2,0 2,1 2,2 „Morðið hafi verið þaulskipulagt“. RÚV. 28. febrúar 2015. Sótt 1. mars 2015.
- ↑ Ómar Þorgeirsson (20. mars 2016). „Stríðsherra með sérstakt dálæti á samfélagsmiðlum“. Kjarninn. Sótt 22. mars 2022.
- ↑ Kristján Róbert Kristjánsson (13. júlí 2017). „Fimm dæmdir fyrir morðið á Nemtsov“. RÚV. Sótt 24. mars 2022.
- ↑ Atli Ísleifsson (28. mars 2022). „Fylgdist með ferðum Nemtsovs í heilt ár fyrir banatilræðið“. Vísir. Sótt 29. mars 2022.