1510
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1510 (MDX í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Víðidalstungureið Einars Oddssonar og Péturs Loftssonar gegn Jóni Sigmundssyni.
- Mikið gos í Heklu, öskufall og tjón á Suðurlandi.
- Hans Rantzau varð hirðstjóri yfir Íslandi.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 31. janúar - Katrín af Aragóníu eignaðist fyrsta barn þeirra Hinriks 8., andvana dóttur.
- 15. febrúar - Júlíus 2. páfi samdi frið við Lýðveldið Feneyjar.
- 27. febrúar - Portúgalinn Afonso de Albuquerque hóf umsátur um Góa á Indlandi sem stóð í 9 mánuði og lagði svæðið loks undir sig og stofnaði nýlenduna Portúgalska Indland.
- 4. apríl - Japanskir kaupmenn gerðu uppreisn í þremur kóreskum borgum sem síðar var bæld niður af Kóreukeisara. Viðskipti Japans og Kóreu lágu niðri í tvö ár eftir það.
- 21. apríl - Lýbikumenn sögðu Dönum stríð á hendur. Nokkru síðar gengu Svíar í lið með Lýbikumönnum.
- 25. júlí - Spánverjar lögðu undir sig Trípólí.
- 10. ágúst - Konunglegi Dansk-norski sjóherinn var stofnaður.
- Peter Henlein í Nürnberg smíðaði fyrsta vasaúrið sem sögur fara af.
- Farsótt sem mögulega var inflúensa breiddist út frá Sikiley.
- Spánverjar komu með sólblóm til Evrópu frá Nýja heiminum.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 22. júlí - Alessandro de' Medici, hertogi af Flórens (d. 1537).
- Ambroise Paré, franskur skurðlæknir (d. 1590).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 1. mars - Francisco de Almeida, fyrsti landstjóri Portúgala á Indlandi.
- 17. maí - Sandro Botticelli, ítalskur málari endurreisnartímans.
- Október - Giorgione, ítalskur listmálari (f. um 1477).
- 31. desember - Bianca Maria Sforza, keisaraynja, kona Maximilians 1., keisara hins Heilaga rómverska ríkis (f. 1472).