Fergin
Fergin | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Equisetum fluviatile L. |
Fergin eða tjarnarelfting (fræðiheiti: Equisetum fluviatile) er fjölær jurt af elftingarætt. Hún vex alla jafna í votlendi, skurðum og jafnvel grunnum tjörnum. Jurtin nær 30 til 100 cm hæð en getur þó orðið stærri. Stöngullinn er alsettur liðum og við hvern lið vaxa 5 til 10 mm langar blöðkur en þær eru svartar í endann.
Fergin fjölgar sér bæði með renglum og gróum. Gróin þroskast í enda stilksins. Fergin er algengt um nær allt tempraðabelti norðurhvels; um alla Evrasíu suður til Spánar, í norðurhluta Ítalíu, Kákasusfjöllum, Kína, Kóreu og Japan í Asíu. Í Norður-Ameríku er hún heimakomin frá Aleuteyjum að Nýfundnalandi, suður til Oregon, Idaho, norðvesturhluta Montana, norðaustur Wyoming, Vestur-Virginíu og Virginíu.
Nýting
[breyta | breyta frumkóða]Carolus Linnaeus getur þess að hreindýr, sem alla jafna fúlsa við venjulegu grasheyi, éti fergin af bestu lyst. Fergin hafi einnig verið slegið sem fóður fyrir kýr í norður-Svíþjóð en að hross sneiði hjá því.