Skarðshreppur (Skagafjarðarsýslu)
Skarðshreppur var hreppur vestan til í Skagafjarðarsýslu, kenndur við bæinn Skarð í Gönguskörðum, undir Tindastóli.[1]
Hreppurinn varð til ásamt Sauðárkrókshreppi árið 1907 þegar Sauðárhreppi var skipt í tvennt. Í Skarðshreppi voru þrjár sveitir: Yst er Reykjaströnd, undir Tindastól austanverðum. Þá eru Gönguskörð, fjalldalir sunnan Tindastóls og loks Borgarsveit, byggðarlagið sunnan Sauðárkróks.[2]
Hinn 6. júní 1998 sameinaðist Skarðshreppur 10 öðrum sveitarfélögum í Skagafirði: Skefilsstaðahreppi, Sauðárkrókskaupstað, Staðarhreppi, Seyluhreppi, Lýtingsstaðahreppi, Rípurhreppi, Viðvíkurhreppi, Hólahreppi, Hofshreppi og Fljótahreppi, og mynduðu þau saman sveitarfélagið Skagafjörð.[3]
Hreppsnefnd
[breyta | breyta frumkóða]Síðasta hreppsnefnd Skarðshrepps var kosin í hreppsnefndarkosningunum 28. maí 1994 og hana skipuðu Andrés Helgason, Jón Eiríksson, Sigrún Aadnegaard, Sigurður Guðjónsson og Úlfar Sveinsson.[4]
Oddvitar [5]
- 1874-1879 Sveinn Sölvason í Skarði
- 1879-1880 Þorleifur Jónasson á Reykjum
- 1880-1883 Benedikt Sölvason á Ingveldarstöðum
- 1883-1886 Þorleifur Jónasson á Reykjum
- 1886-1889 Benedikt Sölvason á Ingveldarstöðum
- 1889-1895 Björn Jónsson á Veðramóti
- 1895-1913 Benedikt Sölvason á Ingveldarstöðum
- 1913-1922 Sigurjón Jónasson í Hólakoti
- 1922-1931 Sigurður Á. Björnsson á Veðramóti
- 1931-1933 Eiríkur Björnsson á Gili
- 1933-1946 Stefán Sigurfinnsson á Meyjarlandi
- 1946-1948 Árni Daníelsson á Sjávarborg
- 1948-1950 Ólafur Lárusson í Skarði
- 1950-1954 Stefán Sigurfinnsson á Meyjarlandi
- 1954-1958 Haraldur Árnason á Sjávarborg
- 1958-1961 Gunnar Guðmundsson á Reykjum
- 1961-1962 Haraldur Árnason á Sjávarborg
- 1962-1966 Stefán Sigurfinnsson á Meyjarlandi
- 1966-1970 Jón Eiríksson í Fagranesi
- 1970-1998 Úlfar Sveinsson á Ingveldarstöðum
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Sauðárkrókur“. Sauðárkrókur (bandarísk enska). 23. janúar 2012. Sótt 14. júlí 2024.
- ↑ „Úrskurður Óbyggðanefndar“ (PDF). 01 2013.
- ↑ Skagafjörður. „Fróðleikur um Skagafjörð“. Skagafjörður. Sótt 14. júlí 2024.
- ↑ Háskólabókasafn, Landsbókasafn Íslands-. „Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 14. júlí 2024.
- ↑ Byggðasaga Skagafjarðar I. bindi Skefilsstaðahreppur - Skarðshreppur, ritstjóri Hjalti Pálsson, bls 190