Fjallaland
Útlit
(Endurbeint frá Piedmont)
Fjallaland
| |
---|---|
Hnit: 45°15′N 7°55′A / 45.250°N 7.917°A | |
Land | Ítalía |
Höfuðborg | Tórínó |
Flatarmál | |
• Samtals | 25.392 km2 |
Mannfjöldi (2024)[1] | |
• Samtals | 4.252.581 |
• Þéttleiki | 170/km2 |
Tímabelti | UTC+01:00 (CET) |
• Sumartími | UTC+02:00 (CEST) |
ISO 3166 kóði | IT-21 |
Vefsíða | www |
Fjallaland (ítalska: Piemonte; fjallalenska: Piemont; franska: Piémont) er hérað á Ítalíu. Það þekur 25.392 km² og íbúar eru um 4,25 milljónir (2024).[1] Höfuðstaður héraðsins er Tórínó. Héraðið dregur nafn sitt af því að það liggur við rætur Alpafjalla sem afmarka það á þrjá vegu. Það á landamæri að Frakklandi, Sviss og ítölsku héruðunum Langbarðalandi, Lígúríu og Ágústudal.
Héraðið varð hluti af Savoja árið 1046 og þegar greifadæmið varð að hertogadæmi árið 1416 var Tórínó gerð að höfuðborg. Þegar hertoginn af Savoja varð konungur Sardiníu varð Tórínó höfuðborg Konungsríkisins Sardiníu. Þar hófst síðan sameining Ítalíu 1859.
Fjallaland skiptist í sex sýslur:
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 „Regione Piemonte“. tuttitalia.it (ítalska). Sótt 27. nóvember 2024.