1707
Útlit
(Endurbeint frá MDCCVII)
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1707 (MDCCVII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Í júní - Bólusótt, sú fyrsta í 35 ár, berst með skipi frá Kaupmannahöfn til Eyrarbakka og breiðist þaðan um allt land. Um fjórðungur Íslendinga er talinn hafa látist úr henni, einkum yngra fólk. Var hún kölluð Stórabóla. Hún kom með fatakistli Gísla Bjarnasonar er úr sóttinni dó í hingaðsiglingu.
- Jón Eyjólfsson varð varalögmaður sunnan og austan.
- Jón Einarsson var skipaður skólameistari í Hólaskóla en dó úr bólusótt áður en hann náði að taka við embætti.
- Þorleifur Skaftason var settur skólameistari í Hólaskóla um stundarsakir.
Fædd
- 9. mars - Guðríður Gísladóttir, biskupsfrú í Skálholti, kona Finns Jónssonar biskups (d. 1766).
Dáin
- 11. september - Jón Einarsson, nýskipaður skólameistari á Hólum.
- Guðríður Þórðardóttir, ekkja Jóns Vigfússonar Hólabiskups (f. um 1645).
- Guðríður Gísladóttir, ekkja Þórðar Þorlákssonar Skálholtsbiskups (f. 1651).
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 1. janúar - Jóhann 5. var krýndur konungur Portúgals.
- 26. mars - Skoska þingið lagt niður.
- 1. maí – Konungsríkið Stóra-Bretland var myndað með Sambandslögunum (Act of Union).
- 16. desember - Eldgos í Fuji-fjalli í Japan. Fjallið hefur ekki gosið síðan.
- Desember - Karl 12. Svíakonungur heldur af stað í herför gegn Rússum.
Fædd
- 1. febrúar - Friðrik, prins af Wales (d. 1751).
- 15. apríl - Leonhard Euler, svissneskur stærðfræðingur og eðlisfræðingur (d. 1783).
- 22. apríl - Henry Fielding, breskur rithöfundur (d. 1754).
- 23. maí - Carl von Linné, sænskur grasafræðingur og læknir (d. 1778).
- 25. ágúst - Loðvík Spánarkonungur (d. 1724).
Dáin
- 9. maí - Dietrich Buxtehude, tónskáld og organisti frá Skáni (f. um 1637).
- Petter Dass, norskur guðfræðingur og skáld (f. 1647).