Handknattleiksárið 1971-72
Handknattleiksárið 1971-72 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1971 og lauk vorið 1972. Framarar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki og Valskonur í kvennaflokki. Karlalandsliðið tryggði sér sæti á Ólympíuleikunum í München eftir forkeppni á Spáni.
Karlaflokkur
[breyta | breyta frumkóða]1. deild
[breyta | breyta frumkóða]Framarar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki karla. Keppt var í sjö liða deild með tvöfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
Fram | 20 |
FH | 19 |
Valur | 14 |
Víkingur | 14 |
KR | 7 |
ÍR | 7 |
Haukar | 3 |
Haukar höfnuðu í neðsta sæti og áttu að færast niður um deild. Haustið 1972 var ákveðið að fjölga í 1. deild og var þá efnt til aukakeppni milli Hauka og næstefsta liðs 2. deildar.
2. deild
[breyta | breyta frumkóða]Ármenningar sigruðu í 2. deild eftir úrslitaleik gegn Gróttu og tryggðu sér þar með sæti í 1. deild. Keppt var í tveimur riðlum með tvöfaldri umferð.
A riðill
Félag | Stig |
---|---|
Grótta | 13 |
Þór Ak. | 12 |
Þróttur | 11 |
KA | 4 |
Stjarnan | 0 |
B riðill
Félag | Stig |
---|---|
Ármann | 12 |
Breiðablik | 6 |
Fylkir | 4 |
ÍBK | 2 |
Úrslitaleikir um sigur í 2. deild
- Grótta – Ármann 14:13
- Ármann – Grótta 15:13
Oddaleikur
- Ármann – Grótta 22:13
Aukaleikir vegna fjölgunar í 2. deild
- Ákveðið var haustið 1972 að fölga liðum í 1. deild upp í átta. Grótta og Haukar, neðsta lið 1. deildar, mættust í einvígi.
- Haukar – Grótta 17:9
- Grótta – Haukar 15:29
Evrópukeppni
[breyta | breyta frumkóða]FH keppti í Evrópukeppni meistaraliða og komst í 8-liða úrslit.
1. umferð
- FH - US d'Ivry (Frakklandi) 18:12
- US d'Ivry - FH 14:15
16-liða úrslit
- FH - UK51 (Finnlandi) 18:12
- FH - UK51 18:12
- Báðir leikir fóru fram á Íslandi
8-liða úrslit
- FH - Partizan Belovar (Júgóslavíu) 14:28
- Partizan Belovar - FH 27:8
Landslið
[breyta | breyta frumkóða]Íslenska karlalandsliðið í handknattleik tók þátt í forkeppni Ólympíuleikanna 1972, þar sem handbolti var á dagskrá í fyrsta sinn frá því á leikunum 1936. Ísland tók þátt í 16 landa keppni sem fram fór á Spáni í marsmánuði 1972, þar sem barist var um fimm laus sæti.
Forriðill
Fjögur lið kepptu í forriðli, tvö komust áfram í milliriðil og tóku úrslitin í innbyrðisviðureigninni með sér þangað. Íslenska liðið olli miklum vonbrigðum með því að gera einungis jafntefli í fyrsta leik, en bætti fyrir það með betri frammistöðu í tveimur næstu viðureignum.
Úrslit Íslands
- Ísland - Finnland 10:10
- Ísland - Belgía 31:10
- Ísland - Noregur 14:14
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Noregur | 3 | 2 | 1 | 0 | 65 | 24 | 5 | |
2 | Ísland | 3 | 1 | 2 | 0 | 55 | 34 | 4 | |
3 | Finnland | 3 | 1 | 1 | 1 | 47 | 47 | 3 | |
4 | Belgía | 3 | 0 | 0 | 3 | 26 | 88 | 0 |
Milliriðill Fjögur lið kepptu í milliriðli. Tvö efstu sætin tryggðu sjálfkrafa farseðilinn á Ólympíuleikana en þriðja sætið gaf oddaleik um síðasta lausa sætið. Íslendingar náðu öðru sætinu, en voru einungis einu marki frá því að vinna riðilinn.
Úrslit Íslands
- Ísland - Austurríki 25:19
- Ísland - Búlgaría 19:10
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Noregur | 3 | 2 | 1 | 0 | 50 | 34 | 5 | |
2 | Ísland | 3 | 2 | 1 | 0 | 58 | 43 | 5 | |
3 | Búlgaría | 3 | 1 | 1 | 1 | 36 | 47 | 2 | |
4 | Austurríki | 3 | 0 | 0 | 3 | 39 | 59 | 0 |
Leikur um 3. sæti
Ísland sigraði Pólland í keppninni um 3. sætið, 21:19.
Kvennaflokkur
[breyta | breyta frumkóða]1. deild
[breyta | breyta frumkóða]Valsarar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna. Keppt var í sex liða deild með tvöfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
Valur | 20 |
Fram | 16 |
Ármann | 10 |
Breiðablik | 7 |
Víkingur | 8 |
Njarðvík | 7 |
Njarðvík féll í 2. deild.
2. deild
[breyta | breyta frumkóða]KR sigraði í 2. deild og færðist upp í 1. deild. Keppt var í fimm liða deild og leikin tvöföld umferð.
Félag | Stig |
---|---|
KR | 16 |
FH | 11 |
ÍBK | 7 |
ÍR | 4 |
Fylkir | 2 |
Evrópukeppni
[breyta | breyta frumkóða]Ekkert íslenskt kvennalið tók þátt í Evrópukeppni þetta árið.