Gemini-geimferðaáætlunin
Útlit
(Endurbeint frá Gemini-áætlunin)
Gemini-geimferðaáætlunin var önnur mannaða geimferðaáætlun Geimferðastofnunar Bandaríkjanna. Tekin var ákvörðun um gerð verkefnisins þann 7. desember 1961[1] en tilkynnt var um það opinberlega þann 3. janúar 1962. Verkefnið stóð svo yfir til 1966[2] og samanstóð af tíu mönnuðum geimferðum auk tveggja ómannaðra.[3] Markmið verkefnisins voru þrenn:
- Að framkvæma tveggja vikna dvöl í geimnum.
- Að tengja saman geimför á sporbaug og stýra tengdum geimförunum.
- Að fullkomna innkomu í lofthjúp jarðarinnar og lendingu á landi.[4]
Nafn verkefnisins Gemini vísar til stjörnumerkisins Tvíburanna. Þar er vísað til geimfaranna tveggja sem mönnuðu hverja ferð og stjarnanna Kastor og Pollux sem mynda Tvíburana.[1]
Neðanmálsgreinar
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 Project Gemini Geymt 26 júlí 2010 í Wayback Machine U.S. Centennial of Flight Commission (enska)
- ↑ NASA Exploration and Innovation Lead to New Discoveries Geymt 6 júlí 2011 í Wayback Machine NASA (enska)
- ↑ Project Gemini Geymt 4 júní 2011 í Wayback Machine NASA (enska)
- ↑ Project Gemini (enska) skoðað 30. maí 2011