Fara í innihald

Finnmörk

Finnmörk
Heiði í Finnmörku
Heiði í Finnmörku
Fáni Finnmerkur
Skjaldarmerki Finnmerkur
Staðsetning í Noregi
Staðsetning í Noregi
Hnit: 70°7′8.65″N 27°35′16.04″A / 70.1190694°N 27.5877889°A / 70.1190694; 27.5877889
Land Noregur
LandshlutiNorður-Noregur
HöfuðstaðurVadsø
Flatarmál
 • Samtals48.638 km2
Mannfjöldi
 (2026)[1]
 • Samtals75.288
 • Þéttleiki1,5/km2
TímabeltiUTC+01:00 (CET)
 • SumartímiUTC+02:00 (CEST)
ISO 3166 kóðiNO-56
Vefsíðawww.ffk.no Breyta á Wikidata

Finnmörk (norska: Finnmark, norðursamíska: Finnmárku, kvenska: Finmarkku) er nyrsta fylki Noregs, 48.638 km2 að stærð og með 75.288 íbúa (2026).[1] Stærsti bærinn í fylkinu er Alta, með um 22.000 íbúa. Höfuðstaður fylkisins er Vadsø, með um 5.800 íbúa. Aðra bæi sem nefna má eru Hammerfest og Kirkenes.

Í Finnmörku er helsta byggð samískumælenda í Noregi og eru opinber skilti í fylkinu bæði á norsku og norðursamísku og einnig er opinber þjónusta veitt á báðum málunum. Þing Sama situr í Karasjok.

Nafnið Finnmörk er fornt og þýðir Samaskógur en Samar voru kallaðir Finnar í Noregi fyrr á öldum. Samar voru frumbyggjar í Finnmörku og er þess oft getið í konungasögum og Íslendingasögum að norskir menn fóru í her- eða verslunarleiðangra til Finnmerkur. Á 13. öld fóru þeir að setjast þar að og Hákon háleggur lét reisa virki í Vargey (Vardø) til að verja Finnmörk gegn ásókn úr austri. Norrænir menn eru nú meirihluti íbúanna. Finnmörk varð sérstakt lén undir nafninu Vardøhuslén, sem varð Vardøhusamt árið 1660. Árið 1787 breyttist nafnið í Finnmerkuramt og árið 1919 í Finnmerkurfylki.

Mjög kalt getur verið í fylkinu og hefur frost farið niður í 50 gráður.[2]

Sveitarfélög

[breyta | breyta frumkóða]

Sveitarfélögin í fylkinu eru 19.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 3 „Population and area, by region, contents and year“. Statistics Norway. Sótt 7 október 2026.
  2. ↑ „Miklar frosthörkur í Norður-Noregi“. Rúv. Sótt 8 janúar 2016.