Aston Villa
Aston Villa Football Club | |||
Fullt nafn | Aston Villa Football Club | ||
Gælunafn/nöfn | The Villans eða The Lions | ||
---|---|---|---|
Stytt nafn | Aston Villa | ||
Stofnað | 21. nóvember 1874 | ||
Leikvöllur | Villa Park | ||
Stærð | 42.573 | ||
Stjórnarformaður | Nassef Sawiris | ||
Knattspyrnustjóri | Unai Emery | ||
Deild | Enska úrvalsdeildin | ||
2023/2024 | 4. sæti af 20 | ||
|
Aston Villa Football Club (einnig þekkt sem einfaldlega Villa) er lið í ensku úrvalsdeildinni. Félagið er staðsett í Aston-hverfinu í Birmingham og var stofnað árið 1874. Félagið hefur leikið heimaleiki sína á Villa Park síðan 1897. Félagið var eitt af stofnfélögum ensku deildarinnar árið 1888 og ensku úrvalsdeildarinnar árið 1992. Villa er eitt af sigursælustu félögum Englands, hefur orðið enskur meistari sjö sinnum og enskur FA-bikarmeistari sjö sinnum. Þá er félagið eitt af aðeins sex enskum liðum sem hefur unnið Meistaradeild Evrópu en það var árið 1982 þegar keppnin hét Evrópubikarinn.
Tveir Íslendingar hafa spilað fyrir Aston Villa. Sá fyrri er Jóhannes Karl Guðjónsson sem spilaði fyrir Aston Villa í hálft tímabil frá janúar 2003 til júní sama árs. Seinni Íslendingurinn sem hefur spilað fyrir Aston Villa er Birkir Bjarnason en hann spilaði með félaginu frá 2017-2019.
Aston Villa og nágrannaliðið Birmingham City er miklir erkifjendur, þegar þessi lið eigast við kallast það "Second City Derby". Nafnið er dregið af borginni Birmingham sem er næst fjölmennasta á Bretlandi. Samtals hafa þessi lið spilað 127 sinnum við hvort annað. Villa hefur unnið 57 þeirra, 33 jafntefli og Birmingham City unnið 37. Síðasti leikur á milli liðanna var í Ensku B deildinni þann 10. mars 2019 sem endaði með 1-0 sigri Aston Villa.
Frá 2006-2016 var eigandi liðsins Randy Lerner. Kínverski viðskiptamaðurinn Tony Xia keypti félagið fyrir 76 milljón punda í gegnum fyrirtækið sitt Recon Group. Tony Xia entist hins vegar ekki lengi í Villa því árið 2018 var tilkynnt að NSWE hafi keypt 55% hluta í Aston Villa sem hækkaði ári síðar í 100% eignarhlutfall. NSWE er samangert úr milljarðarmæringunum Nassef Sawiris og Wes Edens. Þeir eiga félagið en þann dag í dag.[1]
Titlar
[breyta | breyta frumkóða]Titill | Fjöldi | Ár |
---|---|---|
Deildarmeistarar | 7 | 1893/94, 1895/96, 1896/97, 1898/99, 1899/00, 1909/10, 1980/81 |
Enski bikarinn | 7 | 1887, 1895, 1897, 1905, 1913, 1920, 1957 |
Enski deildabikarinn | 5 | 1961, 1975, 1977, 1994, 1996 |
Samfélagsskjöldurinn | 1 | 1981 |
Evrópski ofurbikarinn | 1 | 1982 |
Fjöldi Titla | 22 |
- 1. Deild: 1937/38 og 1959/60.
- 3. deild: 1971/72.
- Úrslitaleikir í enska bikarnum: 1892, 1924, 2000 og 2015.
- Úrslitaleikir í enska deildarbikarnum: 1963, 1971, 2010 og 2020.
Þekktir leikmenn
[breyta | breyta frumkóða]Knattspyrnustjórar
[breyta | breyta frumkóða]
|
|
|
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Aston Villa F.C.“, Wikipedia (enska), 17. júní 2021, sótt 22. júní 2021