Suður-Ameríkukeppni karla í knattspyrnu 1957
Upplýsingar móts | |
---|---|
Mótshaldari | Perú |
Dagsetningar | 7. mars – 6. apríl |
Lið | 7 |
Leikvangar | 1 |
Sætaröðun | |
Meistarar | Argentína (11. titill) |
Í öðru sæti | Brasilía |
Í þriðja sæti | Úrúgvæ |
Í fjórða sæti | Perú |
Tournament statistics | |
Leikir spilaðir | 21 |
Mörk skoruð | 101 (4,81 á leik) |
Markahæsti maður | Javier Ambrois Humberto Maschio (9 mörk hvor) |
Suður-Ameríkukeppni karla í knattspyrnu 1957 var 25. Suður-Ameríkukeppnin í knattspyrnu og var haldin í Líma í Perú dagana 7. mars til 6. apríl. Sjö lið kepptu á mótinu þar sem öll liðin mættust í einfaldri umferð. Argentínumenn urðu meistarar með talsverðum yfirburðum og er sigurliðið talið eitt það besta í sögu argentínsku knattspyrnunnar.
Guillermo Stábile var þjálfari argentínska liðsins sem mætti ógnarsterkt til leiks. Liðið hafði á að skipa fimm manna sóknarlínu sem kölluð var Carasucias, sem var vísun í bandarísku glæpamyndina Angels with Dirty Faces með James Cagney. Hana skipuðu þeir Omar Corbatta, Humberto Maschio, Antonio Angelillo, Enrique Sívori og Osvaldo Cruz. Liðið skoraði 24 mörk í fimm fyrstu leikjum sínum, þar á meðal þrjú á móti Brasilíu og átta gegn Kólumbíu. Sigurinn var í höfn fyrir lokaumferðina þar sem Argentínumenn gátu leyft sér að tapa 2:1 fyrir liði heimamanna.
Frammistaðan í Perú fyllti argentínsku þjóðina mikilli bjartsýni á gott gengi á HM í Svíþjóð 1958. Í millitíðinni voru hins vegar þeir Sivori, Maschio og Angelillo keyptir til ítalskra liða og hættu að leika með landsliðinu. Argentína endaði í neðsta sæti síns riðils í Svíþjóð og tapaði m.a. 6:1 fyrir Tékkóslóvakíu.
Leikvangurinn
[breyta | breyta frumkóða]Líma |
---|
Estadio Nacional de Peru |
Fjöldi sæta: 50.000 |
Keppnin
[breyta | breyta frumkóða]Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Argentína | 6 | 5 | 0 | 1 | 25 | 6 | +19 | 10 | |
2 | Brasilía | 6 | 4 | 0 | 2 | 23 | 9 | +14 | 8 | |
3 | Úrúgvæ | 6 | 4 | 0 | 2 | 15 | 12 | +3 | 8 | |
4 | Perú | 6 | 4 | 0 | 2 | 12 | 9 | +3 | 8 | |
5 | Kólumbía | 6 | 2 | 0 | 4 | 10 | 25 | +15 | 4 | |
6 | Síle | 6 | 1 | 1 | 4 | 9 | 17 | -8 | 3 | |
7 | Ekvador | 6 | 0 | 1 | 5 | 7 | 23 | -16 | 1 |
7. mars | |||
Perú | 2-1 | Ekvador | Áhorfendur: 50.000 Dómari: Erwin Hieger, Austurríki |
Ambrois 26, 29 (vítasp.), 57, 74, Sasía 87 | Larraz 12, 40 (vítasp.) |
10. mars | |||
Perú | 2-1 | Ekvador | Áhorfendur: 55.000 Dómari: Robert Turner, Bretlandi |
Terry 29, 37 (vítasp.) | Cantos 44 |
13. mars | |||
Argentína | 8-2 | Kólumbía | Áhorfendur: 42.000 Dómari: Ronald Lynch, Bretlandi |
Cruz 5, Angelillo 10, 73, Maschio 16 (vítasp.), 23, 53 (vítasp.), 85, Corbatta 59 | Gamboa 34 (vítasp.), Valencia 37 |
13. mars | |||
Brasilía | 4-2 | Síle | Áhorfendur: 42.000 Dómari: Bertley Cross, Bretlandi |
Didi 20, 26, 44, Pepe 46 | Ramírez Banda 13, Fernández 89 |
16. mars | |||
Perú | 1-0 | Síle | Áhorfendur: 60.000 Dómari: Ronald Lynch, Bretlandi |
Mosquera 57 |
17. mars | |||
Kólumbía | 1-0 | Úrúgvæ | Áhorfendur: 50.000 Dómari: Pedro Di Leo, Ítalíu |
Arango 28 |
17. mars | |||
Argentína | 3-0 | Ekvador | Áhorfendur: 50.000 Dómari: Bertley Cross, Bretlandi |
Angelillo 5, 39, Sívori 14 |
20. mars | |||
Argentína | 4-0 | Úrúgvæ | Áhorfendur: 40.000 Dómari: Erwin Hieger, Austurríki |
Maschio 7, 73, Angelillo 48, Sanfilippo 83 | Fernández 14, 28 |
24. mars | |||
Brasilía | 9-0 | Ekvador | Áhorfendur: 45.000 Dómari: Ronald Lynch, Bretlandi |
Evaristo 22, 89, Pepe 25, Zizinho 34 (vítasp.), Joel 43, 68, Didi 78 | Larraz 80 (vítasp.) |
21. mars | |||
Síle | 3-2 | Ekvador | Áhorfendur: 45.000 Dómari: Erwin Hieger, Austurríkii |
Verdejo 35, 70, Espinoza 62 | Arango 68, Carrillo 83 |
23. mars | |||
Úrúgvæ | 5-3 | Perú | Áhorfendur: 55.000 Dómari: Bertley Cross, Bretlandi |
Ambrois 22, 48, 60, 75, Carranza 26 | Terry 3, Seminario 81, Mosquera 83 |
24. mars | |||
Síle | 2-2 | Ekvador | Áhorfendur: 45.000 Dómari: Erwin Hieger, Austurríkii |
Ramírez Banda 18, 26 (vítasp.) | Larraz 25 (vítasp.), Cantos 59 |
24. mars | |||
Brasilía | 9-0 | Perú | Áhorfendur: 45.000 Dómari: Bertley Cross, Bretlandi |
Pepe 27, Evaristo 41, 44, 45, 75, 86, Didi 50, 60, Zizinho 85 |
27. mars | |||
Perú | 4-1 | Kólumbía | Áhorfendur: 55.000 Dómari: Ronald Lynch, Bretlandi |
Terry 34, Rivera 35, 37, Bassa 83 | Arango 73 (vítasp.) |
28. mars | |||
Argentína | 6-2 | Síle | Áhorfendur: 50.000 Dómari: Robert Turner, Bretlandi |
Sívori 7, Angelillo 21, 70, Maschio 53, 74, Corbatta 83 (vítasp.) | Fernández 14, 28 |
28. mars | |||
Úrúgvæ | 3-2 | Brasilía | Áhorfendur: 50.000 Dómari: Erwin Hieger, Austurríki |
Campero 15, 23, Ambrois 17 | Evaristo 68, Didi 70 |
31. mars | |||
Brasilía | 1-0 | Perú | Áhorfendur: 55.000 Dómari: Ronald Lynch, Bretlandi |
Didi 73 (vítasp.) |
1. apríl | |||
Kólumbía | 4-1 | Ekvador | Áhorfendur: 40.000 Dómari: Harry Davis, Bretlandi |
Álvarez 19 (vítasp.), Gutiérrez 22, Gamboa 30, 58 | Larraz 32 (vítasp.) |
1. apríl | |||
Úrúgvæ | 2-0 | Síle | Áhorfendur: 40.000 Dómari: Erwin Hieger, Austurríki |
Campero 28, Roque 40 |
- Leikurinn var flautaður af á 43.mín. vegna óláta áhorfenda.
3. apríl | |||
Argentína | 3-0 | Brasilía | Áhorfendur: 55.000 Dómari: Robert Turner, Bretlandi |
Angelillo 23, Maschio 87, Cruz 90 |
6. apríl | |||
Perú | 2-1 | Argentína | Áhorfendur: 60.000 Dómari: Bertley Cross, Bretlandi |
Mosquera 15, Terry 81 | Sívori 50 |
Markahæstu leikmenn
[breyta | breyta frumkóða]Humberto Maschio og Javier Ambrois voru jafnir markakóngar með níu mörk hvor. Alls voru 101 mark skorað af 33 leikmönnum, ekkert þeirra var sjálfsmark.
- 9 mörk
- 8 mörk
- 5 mörk
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- RSSSF, Suður-Ameríkukeppnin 1957 úrslitagrunnur
- Fyrirmynd greinarinnar var „1957 South American Championship“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 23. nóvember 2023.