Fara í innihald

Senegalska karlalandsliðið í knattspyrnu

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Senegalska karlalandsliðið í knattspyrnu
Merki landsliðsins
GælunafnLes Lions de la Téranga(Teranga ljónin)
ÍþróttasambandSenegalska knattspyrnusambandið
ÁlfusambandCAF
ÞjálfariAliou Cissé
AðstoðarþjálfariJoseph Koto
FyrirliðiKalidou Koulibaly
FIFA sæti
  Hæst
  Lægst
18 (febrúar 2022)
18 (febrúar 2022)
99 (júní 2013)
Heimabúningur
Útibúningur
Fyrsti landsleikur
2-1 á móti Gambíu (1959)
Stærsti sigur
7-0 gegn Máritaríus (9. október 2010)
Mesta tap
11-0 gegn Tékkóslóvakíu (31. október 1990)
Heimsmeistaramót
Keppnir2 (fyrst árið 2002)
Besti árangur2002 (8. liða Úrslit)
Afríkubikarinn
Keppnir16 (fyrst árið 1965)
Besti árangurMeistarar (2022)

Senegalska karlalandsliðið í knattspyrnu er fulltrúi Senegal í knattspyrnu og er stjórnað af Senegalska knattspyrnusambandinu. Liðið á sér ekki mikla sögu á HM. Fyrsta mótið sem það tók þátt í var HM 2002. Liðið á sér töluvert lengri sögu í Afríkukeppninni, en það tók fyrst þátt árið 1965. Liðið vann gullverðlaun þar árið 2022.

Árangur í keppnum

[breyta | breyta frumkóða]

Senegalska liðið vakti heimsathygli á HM 2002 þegar það sigraði ríkjandi heimsmeistara Frakka í opnunarleiknum. Í næstu leikjum gerði að jafntefli við Dani og Úrúgvæ. Í 16. liða úrslitum tókst því svo að slá út sterkt lið Svía áður en það féll úr leik eftir tap í spennandi leik á móti Tyrkjum. Margir leikmenn sem áttu síðar eftir að verða heimsfrægir leikmenn léku með liðinu á þessu móti, nægir þar að nefna El Hadji Diouf, Amara Traoré og Henri Camara.

Þekktir leikmenn

[breyta | breyta frumkóða]

Þjálfarar í gegnum tíðina

[breyta | breyta frumkóða]
Bruno Metsu sem var landsliðsþjálfari Senegal 2000-2002. Han leiddi Senegala í 8. liða úrslit á HM 2002.