Kennaraháskóli Íslands
Stofnaður: | 1907 |
Gerð: | Ríkisháskóli |
Rektor: | Ólafur Proppé |
Nemendafjöldi: | 2.300 |
Staðsetning: | Reykjavík, Ísland |
Vefsíða |
Kennaraháskóli Íslands var háskóli fyrir kennaramenntun á Íslandi. Hann sameinaðist Háskóla Íslands 1. júlí 2008 og varð eitt fimm sviða þar, Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Kennaraháskólinn menntaði fyrst og fremst stéttir sem starfa við kennslu, umönnunarstörf og rannsóknir á sviði menntunar- og uppeldisfræða. Nemendur skólans voru um 2300 á B.A., B.Ed. og B.S. sviði en einnig var hægt að stunda við skólann diplómunám og framhaldsnám til M.A. og doktorsprófs. Kennaraháskólinn starfaði í 100 ár.
Fjarnám og upplýsingatækni
[breyta | breyta frumkóða]Kennaraháskólinn lagði áherslu á fjarnám og nám sem notar ýmsa tæknimiðla. Rúmlega helmingur nemenda skólans stundaði fjarnám þegar skólinn var sameinaður HÍ árið 2008.
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Kennaraskóli Íslands var stofnaður með lögum árið 1907 en kennslan hófst haustið 1908 í nýreistu húsi að Laufásvegi 81. Það hús er kallað Gamli kennaraskólinn og er nú friðað. Kennaramenntun á Íslandi hófst í Flensborgarskóla í Hafnarfirði árið 1892, fyrst sem stutt námskeið og síðar sem viðbótarbekkur við gagnfræðaskóla. Kennaraskólinn var í fyrstu þriggja ára skóli en var lengdur í fjögur ár árið 1943. Við skólann var starfrækt æfingadeild fyrir æfingakennslu kennaranema. Frá árinu 1947 voru inntökuskilyrði í kennaranám landspróf og gagnfræðapróf en fram að þeim tíma var algengt að nemendur kæmu í skólann eftir eitt eða tvö ár í héraðsskóla, gagnfræðaskóla eða öðrum framhaldsskólum. Auk þess mátti ljúka kennaranámi á einu ári eftir stúdentspróf og var það gert í sérstakri stúdentsdeild.
Eftir 1990 var aukin áhersla lögð á framhaldsnám og útskrifuðust fyrstu nemendurnir með M.Ed. gráðu árið 1996.
Nýjar námsbrautir bættust við þegar Kennaraháskólinn, Fósturskólinn, Íþróttakennaraskólinn og Þroskaþjálfaskólinn voru sameinaðir í ársbyrjun 1998. Árið 2008 sameinaðist Kennaraháskólinn Háskóla Íslands og fer kennaramenntun nú fram innan menntavísindasviðs HÍ.
Húsakynni
[breyta | breyta frumkóða]Fyrsti áfangi nýbyggingar Kennaraháskólans við Stakkahlíð í Reykjavík var tekinn í notkun árið 1962. Húsnæðið hýsir nú menntavísindasvið Háskóla Íslands. Á lóð skólans var reistur barnaskóli sem tók við hlutverki æfingadeildarinnar. Hann hét upphaflega Æfinga- og tilraunaskóli Kennaraháskóla Íslands en heitir nú Háteigsskóli og er einn af grunnskólum Reykjavíkur án sérstakra tengsla við menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Nýbyggingin Hamar var reist á lóð skólans í Stakkahlíð og tekin í notkun árið 2002. Kennsla í list- og verkgreinum fer fram í Listgreinahúsi skólans í Skipholti 37. Skrifstofur margra kennara og stofnana innan skólans eru í Skipholti og Bolholti. Stefnt er að því að Menntavísindasvið flytji úr Stakkahlíð og verði staðsett á háskólasvæðinu vestur í bæ.
-
Kort af húsakynnum KHÍ við Stakkahlíð
-
Klettur
-
Matsalur, séð inn í Skála
-
Aðalinngangur við Stakkahlíð
-
Aðalinngangur
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Lög um sameiningu Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands
- Vefsetur Kennaraháskóla Íslands Geymt 12 apríl 2006 í Wayback Machine
- „Saga Kennaraháskóla Íslands, höf. Helgi Skúli Kjartansson“. Sótt 23. mars 2006.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Á þrjátíu ára starfsafmæli Kennaraskólans; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1939
- Magnús Helgason og Kennaraskóli Íslands; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1983