Jónína Bjartmarz
Jónína Bjartmarz (f. 23. desember 1952) er fyrrverandi ráðherra og alþingismaður Framsóknarflokksins. Jónína var umhverfisráðherra frá 15. júní 2006 til 24. maí 2007 og alþingismaður Framsóknarflokksins í Reykjavík á árunum 2000-2007. Hún féll af þingi vegna lélegrar útkomu flokksins á landsvísu í Alþingiskosningunum 12. maí 2007.
Jónína lauk stúdentsprófi frá KHÍ 1974, starfaði sem skrifstofustjóri Lögmannafélags Íslands 1978-1981 og lauk lögfræðiprófi frá HÍ 1981. Jónína var fulltrúi hjá bæjarfógeta Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Seltjarnarness og sýslumannsins í Kjósarsýslu 1981. Fulltrúi hjá yfirborgarfógeta Reykjavíkur 1982 og hjá bæjarfógeta Ísafjarðar og sýslumanni Ísafjarðarsýslu 1982-1984. Loks fulltrúi á Lögfræðiskrifstofu Páls Arnórs Pálssonar hrl. og Stefáns Pálssonar hrl. 1984-1985. Hún stofnaði Lögfræðistofuna sf. árið 1985 ásamt eiginmanni sínum Pétri Þór Sigurðssyni, hæstaréttarlögmanni, þau eiga tvo syni. Jónína sat á þingi frá afsögn Finns Ingólfssonar í árslok 1999 til ársins 2007.
Jónína var formaður Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra 1996-2004 og formaður Félags kvenna í atvinnurekstri 1999-2001.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Heimasíða Jónínu Geymt 20 febrúar 2007 í Wayback Machine
- Eldri heimasíða Jónínu
- Æviágrip á heimasíðu Alþingis
Fyrirrennari: Sigríður Anna Þórðardóttir |
|
Eftirmaður: Þórunn Sveinbjarnardóttir |