Indriði G. Þorsteinsson
Indriði Guðmundur Þorsteinsson (18. apríl 1926 í Skagafirði – 3. september 2000 í Hveragerði) var íslenskur rithöfundur sem er þekktastur fyrir skáldsögur í raunsæjum stíl sem fjalla um flutning fólks úr sveit í borg. Þekktastar eru 79 af stöðinni frá 1955 (samnefnd kvikmynd var gerð 1962), Land og synir frá 1963 (samnefnd kvikmynd var gerð 1980), Þjófur í paradís frá 1967 og Norðan við stríð frá 1971.
Indriði stundaði nám við Héraðsskólann á Laugarvatni 1942 til 1943. Hann var fréttamaður á Tímanum frá 1951 til 1959, á Alþýðublaðinu frá 1959-1962 og ritstjóri Tímans frá 1962 til 1973 og svo aftur frá 1987 til 1991.
Hann var framkvæmdastjóri Alþingishátíðarinnar á Þingvöllum 1974.
Indriði er faðir rithöfundarins Arnaldar Indriðasonar.
Verk
[breyta | breyta frumkóða]Skáldsögur
[breyta | breyta frumkóða]- Sjötíu og níu af stöðinni (1955)
- Land og synir (1963)
- Þjófur í paradís (1967)
- Norðan við stríð (1971)
- Unglingsvetur (1979)
- Keimur af sumri (1987)
Smásagnasöfn
[breyta | breyta frumkóða]- Sæluvika (1951)
- Þeir sem guðirnir elska (1957)
- Mannþing (1965)
- Vafurlogar (1984) – Safn af áður útgefnum smásögum og úrval úr fyrri verkum.
- Átján sögur úr álfheimum (1986)
Ljóð
[breyta | breyta frumkóða]- Dagbók um veginn (1973, aukin og endurskoðuð útgáfa 1982)
Leikverk
[breyta | breyta frumkóða]- Húðir Svignaskarðs (1988)
Ævisögur og viðtalsbækur
[breyta | breyta frumkóða]- Áfram veginn (1975) – um ævi Stefáns Íslandi
- Samtöl við Jónas (1977) – um Jónas frá Hriflu
- Fimmtán gírar áfram (1981) – um brautryðjendur á langferðaleiðum
- Ævisaga Jóhannesar Sveinssonar Kjarval (1985)
- Skýrt og skorinort (1989) – samtöl við Sverri Hermannsson
- Ævisaga Hermanns Jónassonar (tvö bindi, 1990 og 1992)
Annað
[breyta | breyta frumkóða]- Þjóðhátíðin 1974 (1987)
- Bréf til Sólu (1983) – umsjón með útgáfu
- Ýmsar blaðagreinar og bókakaflar
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]Kristján B. Jónasson. „Formáli“. Sjötíu og níu af stöðinni. Íslensku bókaklúbbarnir, 2001: . .