Hásteinsvöllur
Hásteinsvöllur | |
---|---|
Fullt nafn | Hásteinsvöllur |
Staðsetning | Vestmannaeyjar, Ísland |
Hnit | 63°26′22.12″N, 20°17′17.00″W |
Opnaður | 1912 |
Endurnýjaður | 1960 |
Eigandi | Vestmannaeyjabær |
Yfirborð | Gras |
Notendur | |
Íþróttabandalag Vestmannaeyja | |
Hámarksfjöldi | |
Sæti | 1000 |
Önnur aðstaða | 2000 |
Stærð | |
104m x 68m |
Hásteinsvöllur er aðalleikvangur Eyjanna og heimavöllur ÍBV. Sögur af vellinum ná aftur til ársins 1912, en á þeim tíma var hann varla meira en lítt ruddir móar. Völlurinn var endurbættur árið 1922 en þótti aldrei boðlegur sem keppnisvöllur í knattspyrnu né fyrir aðrar íþróttagreinar.
Árið 1935 var gerður nýr leikvangur í Botni Friðarhafnar, var þar mjög slétt flöt og ákjósanleg aðstæða, en hann var einungis notaður í 7 eða 8 ára.
Merk tímamót urðu 1960 er Hásteinsvöllurinn var sléttaður og stækkaður í 100x66 metra og sáð í hann grasfræi. Hann var síðan tekinn í notkun að nýju árið 1963 og hefur verið aðalleikvangur Eyjanna síðan.
Árið 1973 var ákveðið að hlífa Hásteinsvellinum vegna vikurs í grassverðinum, var þá brugðið á það ráð að ryðja niður vikri úr vesturhlíðum Helgafells og búa til knattspyrnuvöllinn Helgafellsvöll í Helgafellsdal.[1]
Fyrir leik ÍBV og Vals 1. júlí 2001 var 534 manna stúka vígð á vellinum.
Upplýsingar
[breyta | breyta frumkóða]- Stærð 104m x 68m
- Met aðsókn 3. ágúst 2013 - 3.034 ÍBV - FH Pepsideild karla
- Meðalásókn tímabilið 2013: 981 (hæsta meðalásókn frá upphafi)
Aðstaða | Fjöldi |
Sæti / bekkir undir þaki | 480 |
Sæti / bekkir án þaks | 520 |
Uppbyggð stæði með þaki | 0 |
Uppbyggð stæði án þaks | 0 |
Önnur ósamþykkt aðstaða | 2000 |
Áhorfendur alls | 3000 |
Áhorf
[breyta | breyta frumkóða]Hásteinsvöllur er gríðarlega vel sóttur miðað við íbúafjölda svæðisins, meðaltal áhorfendafjöldans á tímabili hefur ávallt verið yfir 10% af heildarfjölda íbúa á svæðinu.
Metfjöldi áhorfenda eftir tímabilum
[breyta | breyta frumkóða]Tímabil | Leikur | Úrslit | Áhorfendur | Í beinni |
---|---|---|---|---|
2020 | ÍBV - Grindavík | 1-1 (0-1) | 358 | |
2019 | ÍBV - HK | 0-1 (0-0) | 1597 | |
2018 | ÍBV - Fylkir | 0-1 (0-1) | 1577 | |
2017 | ÍBV - Breiðablik | 1-1 (0-1) | 804 | |
2016 | ÍBV - ÍA | 4-0 (3-0) | 914 | |
2015 | ÍBV - Stjarnan | 0-2 (0-1) | 848 | |
2014 | ÍBV - Víkingur | 1-2 (0-0) | 651 | |
2013 | ÍBV - FH | 1-2 (0-1) | *^3.034 | |
2012 | ÍBV - Breiðablik | 0-0 (0-0) | 768 | |
2011 | ÍBV - KR | 1-1 (1-0) | ^1.052 | |
2010 | ÍBV - Selfoss | 3-0 (1-0) | 1.292 | |
2009 | ÍBV - Fylkir | 2-3 (1-0) | 689 | |
2008 | ÍBV - Selfoss | 3-0 (2-0) | 651 | |
2007 | ÍBV - KA | 1-0 (0-0) | ^2.275 | |
2006 | ÍBV - Keflavík | 2-1 (1-1) | 733 | |
2005 | ÍBV - Valur | 1-0 (0-0) | 1.142 | |
2004 | ÍBV - Fylkir | 3-1 (0-1) | 825 | |
2003 | ÍBV - KR | 0-0 (0-0) | 750 | |
2002 | ÍBV - Fram | 0-1 (0-0) | 860 | |
2001 | ÍBV - ÍA | 2-2 (1-2) | 1.708 | |
2000 | ÍBV - KR | 1-1 (1-1) | 828 | |
1999 | ÍBV - KR | 2-1 (1-1) | 1.000 | |
1998 | ÍBV - KR | 3-1 (1-1) | 773 | |
1997 | ÍBV - Keflavík | 5-1 (3-1) | 1.026 | |
1996 | ÍBV - Valur | 1-0 (0-0) | 703 | |
1995 | ÍBV - Breiðablik | 2-3 (0-1) | 663 | |
1994 | ÍBV - KR | 1-0 (0-0) | 1.030 | |
1993 | ÍBV - Fylkir | 1-0 (0-0) | 1.400 | |
1992 | ÍBV - Valur | 1-2 (1-1) | 710 | |
1991 | ÍBV - Víðir | 2-0 (1-0) | 920 | |
1990 | ÍBV - Stjarnan | 4-3 (2-0) | 1.100 |
- Blátt merkir ÍBV sigur en rautt merkir tap
- Grátt merkir leikur í 1. deild
- "^" Mesta ásókn umferðarinnar
- "*" Met aðsókn
Meðalfjöldi áhorfenda og beinar útsendingar
[breyta | breyta frumkóða]Meðalfjöldi áhorfenda fyrir hvert tímabil á Hásteinsvelli hefur farið vaxandi undanfarin ár.
Tölfræðin nær aðeins til leikja í deildarkeppni karla í knattspyrnu.
Tímabil | Áhorfendur | Beinar útsendingar | Rétthafi |
---|---|---|---|
2015 | 647 | 0 | |
2014 | 512 | 0 | |
2013 | *981 | 2 | |
2012 | 659 | 0 | |
2011 | 826 | 1 | |
2010 | 885 | 1 | |
2009 | 628 | 1 | |
2008 | 495 | 0 | |
2007 | 554 | 0 | |
2006 | 600 | 1 | |
2005 | 697 | 0 |
- "*" Met meðaltal
- "~" Getur breyst
Leikir karla í beinni
[breyta | breyta frumkóða]Ár | Leikur | Úrslit | Áhorfendur | Rétthafi | Mót |
---|---|---|---|---|---|
2014 | ÍBV - KR | 2-5 (0-2) | 1.303 | Bikarkeppni karla í knattspyrnu 2014 | |
2013 | ÍBV - FH | 1-2 (0-1) | 3.034 | Pepsideild karla í knattspyrnu 2013 | |
2013 | ÍBV - Crvena zvezda | 0-0 (0-0) | - | RTS1 | Evrópudeild UEFA 2013 |
2013 | ÍBV - Breiðablik | 4-1 (1-0) | 1.112 | Pepsideild karla í knattspyrnu 2013 | |
2012 | ÍBV - KR | 1-2 (1-0) | 1.083 | Bikarkeppni karla í knattspyrnu 2012 | |
2011 | ÍBV - KR | 1-1 (1-0) | 1.052 | Pepsideild karla í knattspyrnu 2011 | |
2010 | ÍBV - FH | 1-3 (0-2) | 848 | Pepsideild karla í knattspyrnu 2010 | |
2009 | ÍBV - Þróttur R. | 1-0 (1-0) | 580 | Pepsideild karla í knattspyrnu 2009 | |
2006 | ÍBV - FH | 1-1 (0-0) | 713 | Landsbankadeild karla 2006 |
Gult er leikur í bikarkeppni
Leikir kvenna í beinni
[breyta | breyta frumkóða]Ár | Leikur | Úrslit | Áhorfendur | Rétthafi | Mót |
---|---|---|---|---|---|
2014 | ÍBV - Valur | 1-2 (1-1) | - | SportTV.is | Pepsideild kvenna í knattspyrnu 2014 |
2013 | ÍBV - Stjarnan | 0-3 (0-2) | 143 | Pepsideild kvenna í knattspyrnu 2013 | |
2012 | ÍBV - Þór Ak. | 1-1 (1-1) | - | Pepsideild kvenna í knattspyrnu 2012 | |
2012 | ÍBV - Stjarnan | 2-2 (0-2) | - | Pepsideild kvenna í knattspyrnu 2012 |
|
Tilvísanir og heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Hermann Kr Jónsson (ábyrgðarmaður, margir höfundar) (1995). 50 ára afmælisriti ÍBV. ÍBV.