Fara í innihald

Fljótahreppur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fljótahreppur

Fljótahreppur var hreppur nyrst í Skagafjarðarsýslu, austan megin Skagafjarðar, kenndur við sveitina Fljót.[1]

Fljótahreppur skiptist í Haganeshrepp og Holtshrepp árið 1898 (eða 1899) en þeir sameinuðust aftur undir sama nafni 1. apríl 1988.[2]

Hinn 6. júní 1998 sameinaðist Fljótahreppur 10 öðrum sveitarfélögum í Skagafirði: Skefilsstaðahreppi, Sauðárkrókskaupstað, Skarðshreppi, Staðarhreppi, Seyluhreppi, Lýtingsstaðahreppi, Rípurhreppi, Viðvíkurhreppi, Hólahreppi og Hofshreppi og mynduðu þau saman sveitarfélagið Skagafjörð.[3]

Hreppsnefnd

[breyta | breyta frumkóða]

Síðasta hreppsnefnd Fljótahrepps var kosin í hreppsnefndarkosningunum 28. maí 1994 og hana skipuðu Guðrún Halldórsdóttir, Gunnar Steingrímsson, Haukur Ástvaldsson, Hermann Jónsson og Örn Þórarinsson.[4]

  1. „Fljót – Iceland Road Guide“. Sótt 11. ágúst 2024.
  2. „Fljótahreppur 1988-1998“. kosningasaga. 25. febrúar 2013. Sótt 11. ágúst 2024.
  3. Skagafjörður. „Fróðleikur um Skagafjörð“. Skagafjörður. Sótt 11. ágúst 2024.
  4. Háskólabókasafn, Landsbókasafn Íslands-. „Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 11. ágúst 2024.
  Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.