Christmas & Chill er önnur jólaplata og EP-plata bandarísku söngkonunnar Ariana Grande. Platan var gefin út 18. desember 2015 af Republic Records. Hún inniheldur sex upprunaleg lög sem fá innblástur úr ryþmablús tónlistarstefnunni. Hún fékk góða dóma frá tónlistargagnrýnendum og náði 34. sæti á Billboard 200 listanum og 3. sæti á Billboard Holiday Albums.[1] Í fyrstu vikunni seldust 35.000 eintök í Bandaríkjunum og hefur síðan selst í yfir 180.000 eintökum á heimsvísu.[2][3]Christmas & Chill var fyrst eingöngu fáanleg á stafrænu formi, en árið 2016 var hún gefin aftur út í Japan á geisladiski með nýrri kápu.[4]