Fara í innihald

Tyrkneska

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Türkçe)
Tyrkneska
Türkçe
Málsvæði Tyrklandi, Búlgaríu, Kýpur, Grikklandi, Makedóníu, Kósovó, Rúmeníu, Aserbaídsjan og í innflytjendasamfélögum í Þýskalandi, Frakklandi, Hollandi, Austurríki, Úsbekistan, Bandaríkjunum, Belgíu og Sviss
Heimshluti Tyrkland, Kýpur, Balkanskagi og Kákasusfjöll
Fjöldi málhafa 75-83 milljónir
Sæti 15-16
Ætt Altaískt (umdeilt)

 Tyrkískt
  Suðvesturtyrkískt
  Vestur Oghuz
   tyrkneska

Opinber staða
Opinbert
tungumál
Tyrkland
Stýrt af Tyrknesku tungumálasamtökunum
Tungumálakóðar
ISO 639-1 tr
ISO 639-2 tur
SIL TUR
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode.

Tyrkneska (Türkçe, borið fram [tyɾktʃe]) er tyrkískt tungumál og þar af leiðandi eitt af hinum umdeildu altísku tungumálum. Hún er mest töluð í Tyrklandi en einnig af minni hópum á Kýpur, í Grikklandi og Austur-Evrópu, auk þess að vera töluð af nokkrum milljónum innflytjenda í Vestur-Evrópu. Tyrkneska er útbreiddasta tyrkíska málið og 65 – 73 milljón manns hafa málið að móðurmáli. 85 af hundraði íbúa Tyrklands hafa tyrknesku að fyrsta máli en 12 kúrdísku. Eftirliggjandi 3 prósent deilast á um 30 mál sem sum af hverjum eru miljónamál töluð í nágrannalöndunum svo sem armenska eða arabíska en mörg eru smámál á hverfanda hveli og í hættu á að leggjast af. Rætur tungumálsins má rekja til Mið-Asíu, þar sem fyrstu skrifin ná aftur um tæp 1.200 ár. Í vesturátt eru áhrifin aðalega af Ottóman tyrknesku — sem er afsprengi tyrknesku tungunnar og var notuð í Ottóman-stórveldinu og breiddist út samhliða því. Tyrkneska hefur verið rituð með latínuletri frá 1928 en var áður rituð með arabísku letri. Nafnorð í tyrknesku hafa sex föll. Enginn tiltekin greinir er í málinu en tiltekni er oft mynduð með notkun þolfalls. Lýsingarorð taka engum beygjingum. Persónufornafn þriðju persónu greinir ekki kyn. Í ritmálinu táknar ufsilon venjulega joð, venjulegt sje (c) 'dj', setillu sje (ç) 'tj', setillu ess 'sj'. U táknar ú og tvípunkts -u (ü) u (líkt og í þýsku). Gje með niðurbendandi ör fyrir ofan (ğ) greinist vart.

Nokkrar setningar og orð

[breyta | breyta frumkóða]
Türkçe Íslenska
Selam, merhaba Halló
İyi günler Góðan daginn
İyi akşamlar Gott kvöld
Tanıştığıma memnun oldum Gaman að hitta þig
Türkçe konuşuyorum Ég tala tyrknesku
Türkçe/İzlandaca konuşamıyorum Ég tala ekki tyrknesku/íslensku
Evet
Hayır Nei
Nasılsınız? (formlegt) Hvað segirðu gott?
Nasılsın? (óformlegt) Hvað segirðu gott?
İyiyim Ég segi allt gott
(Çok) Teşekkür ederim Takk (fyrir)
Adınız nedir? (formlegt) Hvað heitirðu?
Adın ne(-dir)? (óformlegt) Hvað heitirðu?
(Benim) adım ... Ég heiti ...
Hoşçakal Bless

Persónufornöfn í tryknesku

[breyta | breyta frumkóða]
eintala fleirtala
1 2 3 1 2 3
nefnifall ben sen o biz siz onlar
þolfall beni seni onu bizi sizi onları
þágufall bana sana ona bize size onlara
staðarfall bende sende onda bizde sizde onlarda
sviptifall benden senden ondan bizden sizden onlardan
eignarfall benim senin onun bizim sizin onların
  Þessi tungumálagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.