Fara í innihald

Norðvesturhéruðin

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Norðvesturhéruðin
  • Northwest Territories (enska)
  • Territoires du Nord-Ouest (franska)
Fáni Norðvesturhéraðanna
Skjaldarmerki Norðvesturhéraðanna
Staðsetning Norðvesturhéraðanna
Staðsetning Norðvesturhéraðanna í Kanada
Hnit: 67°N 121°V / 67°N 121°V / 67; -121
Land Kanada
Aðild að ríkjabandalaginu15. júlí 1870; fyrir 156 árum (1870-07-15) (Fimmta, með Manitóba)
Höfuðborg
(og stærsta borg)
Yellowknife
Stjórnarfar
 • UmboðsmaðurGerald Kisoun
 • ForsætisráðherraR. J. Simpson
Þingmenn
neðri málstofu
1 af 343 (0,3%)
Þingmenn
öldungadeildar
1 af 105 (1%)
Flatarmál
 • Samtals1.346.106 km2
 • Land1.183.085 km2
 • Vatn163.021 km2  (12,1%)
 • Sæti3. sæti
 13,5% af Kanada
Mannfjöldi
 (2021)
 • Samtals41.070[2]
 • Áætlað 
(2026)
45.803[3]
 • Sæti11. sæti
 • Þéttleiki0,03/km2
TímabeltiUTC−06:00 (NTT)
Skammstöfun póstfangs
NT
Póstfangsforskeyti
  • X0
  • X1
ISO 3166 kóðiCA-NT
Opinber tungumálchipewyan, cree, enska, franska, gwichʼin, inuinnaqtun, inúktitút, inuvialuktun, slavey, tłįchǫ
Vefsíðawww.gov.nt.ca Breyta á Wikidata
Sætaröðun miðast við öll fylkin og svæðin.
Þéttbýlisstaðir.
Miðbær Yellowknife

Norðvesturhéruðin (enska: Northwest Territories, franska: les Territoires du Nord-Ouest) er sjálfstjórnarsvæði í Norðvestur-Kanada. Það á landamæri að Bresku-Kólumbíu, Alberta og Saskatchewan í suðri, Júkon í vestri og Núnavút í austri. Höfuðstaðurinn er Yellowknife. Í Norðvesturhéruðunum búa um 46 þúsund manns (2026).[3] Rúmur helmingur íbúa er af frumbyggjaættum.

Námuvinnsla hefur verið þar á gulli og demöntum og einnig vinnsla á jarðgasi og olíu.

Landsvæði

[breyta | breyta frumkóða]

Sjálfstjórnarsvæðið er 1.346.106 ferkílómetrar að stærð.[1] Barrskógar og túndra eru áberandi í landslaginu og túndran algengari eftir því sem norðar dregur. Hvítgreni vex allt að óshólmum Mackenziefljóts á 69. breiddargráðu og er það þar með norðlægasta barrtré Norður-Ameríku. Mackenziefljót sem rennur um svæðið er stærsta og lengsta fljót Kanada. Stöðuvatnið Stóra-Bjarnarvatn er stærsta stöðuvatn Kanada. Stóra-Þrælavatn er dýpsta stöðuvatn í Norður-Ameríku. Hæsti punktur svæðisins er Nirvana-fjall (2.773 m), við landamærin að Júkon.

Þjóðgarðurinn Wood Buffalo-þjóðgarðurinn er að hluta til á svæðinu.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 „Land and freshwater area, by province and territory“. Statistics Canada. 7 október 2016. Sótt 12. september 2026.
  2. ↑ „Population and dwelling counts: Canada, provinces and territories“. Statistics Canada. Sótt 12. september 2026.
  3. 1 2 „Population estimates, quarterly“. Statistics Canada. 17 júní 2026. Sótt 12. september 2026.