Nýja testamentið
Útlit
Nýja testamentið er annar hluti Biblíu kristinna manna. Nýja testamentið fjallar um ævi og kenningar Jesú, og atburði sem tengjast frumkristni. Hinn hluti Biblíunnar, Gamla testamentið, er að mestu byggður á hebresku biblíunni. Nýja og gamla testamentið eru saman álitin heilög ritning meðal kristinna manna.
Nýja testamentið er safn kristinna rita sem upphaflega voru skrifuð á koine grísku af ólíkum aðilum á ólíkum tímum. Rit Gamla testamentisins geta verið mismunandi eftir kristnum söfnuðum, en rit Nýja testamentisins eru nær undantekningalaust sömu 27 ritin:
- Guðspjöllin fjögur
- Postulasagan
- Þrettán bréf Páls postula
- Hebreabréfið
- Almennu bréfin sjö
- Opinberun Jóhannesar
Elsta heimildin um þessi 27 rit saman er bréf Aþanasíusar biskups í Alexandríu frá árinu 367.