Fara í innihald

Sálmarnir

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Sálmarnir eru 19. bókin í Gamla testamentinu í Biblíunni (21. bókin í kaþólskum biblíum). Þeir eru einnig kallaðir „Davíðssálmar“ eða „Saltarinn“. Sálmarnir eru 150 að tölu. Þeir eru mikilvægur hluti af tíðabænum sem kaþólskir prestar, klausturbúar og fleiri fara með á hverjum degi.

„Sálmarnir eru mjög fjölbreytilegir að gerð. Mest fer fyrir harmsálmum en lofgjörðarljóð eru einnig fyrirferðarmikil. Þar er að finna ýmsar aðrar gerðir sálma, svo sem spekiljóð, konungssálma og þakkarljóð. Sálmarnir eru ýmist einstaklingssálmar eða sálmar safnaðar,“ stendur í inngangi þeirra í Biblíuútgáfunni árið 2007.