María Fjodorovna
María Feodorovna (fædd Marie Sophie Frederikke Dagmar Danmerkurprinsessa; f. 26. nóvember 1847, d. 13. október 1928) (nefnd Dagmar Kristjánsdóttir á íslensku eða Dagmar keisaraekkja) var keisaraynja Rússlands og miðdóttir Kristjáns 9. Danakonungs og Lovísu af Hessen-Kassel.
Brúðkaup og fjölskylda
[breyta | breyta frumkóða]Upprunalega átti Dagmar að giftast elsta syni Alexanders II, Nikulási Aleksandrovítsj stórhertoga, en hann dó úr berklum. Þá var brugðið á það ráð að trúlofa Dagmar með bróður Nikulásar, Alexander. Dagmar og Alexander giftust 9. nóvember 1866. Þau eignuðust sex börn:
- Nikulás stórhertogi, seinna Nikulás II Rússlandskeisari (f. 6. maí 1868 – 17. júlí 1918)
- Alexander Aleksandrovítsj stórhertogi (f. 7. júní 1869 – 2. maí 1870)
- Georg Aleksandrovítsj stórhertogi (f. 6. maí 1871 – 9. ágúst 1899)
- Xenia Aleksandrovna stórhertogaynja (f. 6. apríl 1875 – 20. apríl 1960)
- Michael Aleksandrovítsj stórhertogi (f. 28. nóvember 1878 – 12. júní 1918)
- Olga Aleksandrovna stórhertogaynja (f. 13. júní 1882 – 24. nóvember 1960)
Alexander II dó árið 1894 og tók Nikulás, sonur þeirra hjóna, við krúnunni. Dagmar eða Maria eins og hún var þekkt í Rússlandi varð þá keisaraekkja.
Árið 1918 varð rússneska byltingin og voru tveir af sonum Mariu myrtir. Georg V Bretlandskonungur sendi skip eftir móðursystur sinni og öðrum rússneskum ættingjum. Maria var í útlegð fyrst í Bretlandi en settist síðan að í Danmörku þar sem hún dó árið 1928. Hún var jarðsett í dómkirkjunni í Hróarskeldu, en í nóvember 2006 var hún grafin upp, flutt til Rússlands og grafin við hlið eiginmanns síns.