Héðinn Valdimarsson
Héðinn Valdimarsson (26. maí 1892 – 12. september 1948) var íslenskur stjórnmálamaður og verkalýðsforingi.
Héðinn var sonur Valdimars Ásmundssonar, ritstjóra, og Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, kvenréttindafrömuðar og bæjarfulltrúa. Systir hans var Laufey Valdimarsdóttir.
Héðinn gekk í Menntaskólann í Reykjavík og lauk svo hagfræðinámi við Kaupmannahafnarháskóla 1917. Eftir að Héðinn sneri heim vann hann hjá Landsverslun í níu ár. Héðinn stofnaði og rak Tóbaksverslun Íslands hf. (1926-29) og Olíuverzlun Íslands hf. (1927). Hann var þingmaður fyrir Alþýðuflokkinn en átti síðar þátt í stofnun Sameiningarflokks alþýðu - Sósíalistaflokksins 1938 ásamt Kommúnistaflokknum. Héðinn sat á Alþingi frá 1926-1942.[1]
Héðinn var formaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar í fjögur skipti eða í samtals 13 ár á árabilinu 1922-1941 og formaður Byggingafélags verkamanna (nafni félagsins var síðar breytt í Byggingafélag alþýðu en heitir nú Húsfélag alþýðu) um árabil og var einn helsti hvatamaður að byggingu verkamannabústaða í Reykjavík. Hann lagði fram frumvarp til laga um verkamannabústaði árið 1933.[2] Byggingafélag alþýðu lét gera styttu af Héðni og var hún reist á Hringbraut í Reykjavík í nánd við verkamannabústaðina. Sigurjón Ólafsson myndhöggvari var höfundur styttunnar og var hún sett upp í október árið 1955.[3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Alþingi, Æviágrip - Héðinn Valdimarsson
- ↑ Skjaladagur.is, „Byggingafélag verkamanna í Reykjavík“ (skoðað 2. febrúar 2020)
- ↑ Listasafn Reykjavíkur, „Safneign - Héðinn Valdimarsson“ (skoðað 2. febrúar 2020)