Grænaskur
Grænaskur | ||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Blöð og stofn grænasks
| ||||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||||
Fraxinus mandshurica Rupr. | ||||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||||
Homotypic
Heterotypic
|
Grænaskur (fræðiheiti: Fraxinus mandshurica) er tegund af eskiættkvísl ættuð úr norðvestur Asíu; norður Kína (Gansu, Hebei, Heilongjiang, Henan, Hubei, Jilin, Liaoning, Shaanxi, Shanxi), Kórea, Japan og suðaustur Rússland (Sakhalineyja).[1]
Þetta er meðalstórt til stórt lauffellandi tré, að 30 m hátt, með stofn sem verður að 50 sm í þvermál. Blöðin eru 25 til 40 sm löng, fjaðurskift, með 7 til 13 smáblöð, smáblöðin 5 til 20 sm löng og 2 til 5 sm breið, stilklaus og með tenningu á jaðrinum. Þau verða gullgul snemma á haustin og er tegundin yfirleitt nokkuð snemma með haustlit. Blómin koma að vori, rétt á undan blöðunum, í gisinni blómskipan, þau eru óáberandi og án krónublaða, og vindfrjóvguð. Fræin eru 1–2 sm löng með væng.[1]
Hann er náskyldur Svartaski (Fraxinus nigra) frá austur Norður Ameríku, og hefur stundum verið talinn undirtegund eða afbrigði af honum af sumum höfundum; F. nigra subsp. mandschurica (Rupr.) S.S.Sun, eða F. nigra var. mandschurica (Rupr.) Lingelsheim.[1]
Stafsetningin á tegundarheitinu er einnig umdeild; sumir (til dæmis Flora of China[1]) skrifa mandschurica, meðan aðrir (t.d. USDA GRIN[2]) skrifa mandshurica. Upprunalega skráningin 1857 (rússnesk) var ekki með "c." [3]
Vistfræði
[breyta | breyta frumkóða]Hann þolir margskonar jarðveg, þar á meðal blautan mýrajarðveg og í árdölum, og hefur engar sérstakar kröfur um sýrustig, vex þó illa í mjög súrum jarðvegiH.[4] Hann þarfnast fullrar sólar til að þroskast vel, og að minnsta kosti 50 sm úrkomu á ári. Hann þarf meginlandslagsloftslag með skýrt afmörkuðum árstíðum; kaldir vetur, heit sumur og engin síðvorsfrost.[5]
Fræin eru étin af fjölda fuglategunda.
Nytjar
[breyta | breyta frumkóða]Þessi tegund er stundum ræktuð sem skrauttré í hlutum Kanada og Bandaríkjunum. Þar er hann notaður í skjólbelti fyrir bóndabæi. Hann þolir líka mjög vel mengun í bæjum og borgum. Hann er einnig gott landslagstré á rökum svæðum, sérstaklega meðfram vegum og síkjum þar sem nægur raki er til staðar. Krónan verður meir egglaga er hann eldist.
Hann þolir illa hafrænt loftslag í ræktun, laufgast of snemma og skaddast af seinum vorfrostum.[5]
Það er verið að rannsaka möguleika á því að fá erfðaþátt úr honum til varnar Agrilus planipennis, asískri skordýrategund sem er upprunalega með áþekka útbreiðslu og grænaskur, en hún hefur orðið mikil plága í Norður Ameríku.[6] Hinsvegar eru einnig umtalsverð afföll af grænaski af hennar völdum í Kna.[7]
Blendingar við svartask hafa verið ræktaðir.[6]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 1,2 1,3 Wei Zhi; Peter S. Green. „Fraxinus mandshurica“. Flora of China. Missouri Botanical Garden, St. Louis, MO & Harvard University Herbaria, Cambridge, MA. Sótt 27. maí 2012.
- ↑ "Fraxinus mandshurica". Geymt 22 júlí 2020 í Wayback Machine Germplasm Resources Information Network (GRIN). Agricultural Research Service (ARS), United States Department of Agriculture (USDA).
- ↑ Ruprecht, Franz Josef. 1857. Bulletin de la Classe Physico-Mathématique de l'Académie Impériale des Sciences de Saint-Pétersbourg 15: 371.
- ↑ Alberta Government agriculture & food: Fraxinus Geymt 30 ágúst 2007 í Wayback Machine
- ↑ 5,0 5,1 Bean, W. J. (1978). Trees and Shrubs Hardy in the British Isles 8th ed., vol. 2. John Murray ISBN 0-7195-2256-0.
- ↑ 6,0 6,1 Ohio State University: Ash Alert Geymt 4 nóvember 2007 í Wayback Machine
- ↑ European and Mediterranean Plant Protection Organization Data sheets on quarantine pests: Agrilus planipennis (pdf file) (currently unavailable; google cache)