1545
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1545 (MDXLV í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Verslunareinokun komið á í Vestmannaeyjum þar sem íbúum eyjanna var bannað að versla við aðra en kaupmenn Danakonungs. Erfiðlega gekk þó að framfylgja banninu enda Englendingar fjölmennir við eyjarnar.
- Skriða féll úr Vatnsdalsfjalli yfir bæinn Skíðastaði í Vatnsdal. Fjórtán fórust.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Gísli Þórðarson, lögmaður sunnan og austan.
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 1. apríl - Auðugustu silfurnámur heimsins fundust í fjallinu Cerro Rico í Bólivíu. Þar varð til námubærinn Potosí.
- 13. júní - Spænski landkönnuðurinn Yñigo Ortiz de Retez kannaði strönd Nýju-Gíneu sem hann nefndi svo.
- 18. júlí - 19. júlí - Englendingar og Frakkar börðust við Solent-sund við suður-England. Enska skipið ,the Mary Rose, sökk og létust 365 af 400 í áhöfn. Englendingar hröktu nokkru síðar Frakka frá Wight-eyju.
- 16. september:
- Hertogadæmið Parma var stofnað á Ítalíu að skipan Páls 3. páfa.
- Englendingar brenndu 5 skoska bæi við landamæri ríkjanna.
- 10. nóvember - Heilaga rómverska ríkið og Ottómanveldið sömdu um vopnahlé.
- 13. desember - Kirkjuþingið í Trento formlega sett (lauk 1563).
- Uppskerubrestur varð í Henan í Kína. Landflótti varð úr héraðinu en þeir sem urðu eftir gripu til að borða trjábörk og mannáts.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Mars - Gaspare Tagliacozzi, ítalskur skurðlæknir. 1599)
- 1. apríl - Peder Claussøn Friis, norskur prestur og fornmenntafræðingur (d. 1614).
- 2. apríl - Elísabet af Valois, Spánardrottning, þriðja eiginkona Filippusar 2. (d. 1568).
- 8. júlí - Karl prins af Astúríu, krónprins Spánar (d. 1568).
- 27. ágúst - Alexander Farnese, hertogi af Parma (d. 1592).
- 7. desember - Henry Stuart, lávarður af Darnley, eiginmaður Maríu Skotadrottningar (d. 1567).
- Magnús Heinason, færeyskur sægarpur (d. 1589).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 8. ágúst - Injong af Joseon, Kórekonungur (f. 1515).
- 12. ágúst - María Manúela af Portúgal, fyrsta eiginkona Filippusar 2. Spánarkonungs (f. 1527).
- 24. ágúst - Charles Brandon, hertogi af Suffolk, enskur stjórnmálamaður og eiginmaður Maríu Tudor, systur Hinriks 8. (f. um 1484).