1411
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1411 (MCDXI í rómverskum tölum)
Atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- Jón Tófason var vígður Hólabiskup. Hann kom þó ekki til landsins fyrr en árið 1419.
- Björn Einarsson Jórsalafari kom til landsins úr Jórsalaför sinni.
Fædd
Dáin
- Pétur Nikulásson Hólabiskup (hugsanlega dáinn 1410). Hann hafði þá dvalist erlendis frá 1402.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 1. febrúar - Fyrsti friðarsamningurinn í Thorn milli Pólverja og Litháa annars vegar og Þýsku riddaranna hins vegar.
- Febrúar - Jóhannes XXIII mótpáfi bannfærði Jan Hus (Jóhann Húss).
- 17. febrúar - Süleyman Çelebi, soldán Ottómanveldisins var kyrktur til bana. Bróðir hans Musa tók við stjórn.
- 26. febrúar - Borgin Ahmedabad var stofnuð í Indlandi.
- 24. mars - Vopnahlé gert milli Eiríks af Pommern og greifanna í Holsetalandi.
- 21. júlí - Sigismundur af Lúxemborg var kjörinn konungur Þýskalands.
- 22. október - Hundrað ára stríðið: Hertoginn af Búrgúnd og Englendingar náðu yfirráðum yfir París.
- Mingveldið í Kína hóf úrbætur á Miklaskurði.
- Fædd
- Dáin
- 2. júní - Leópold 4. Austurríkishertogi (f. 1371).