1385
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1385 (MCCCLXXXV í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- 25. desember - Eiríkur Guðmundsson og Guðmundur Ormsson fóru að Þórði Jónssyni góðamanni á jólanótt og drápu hann.
- Halastjarna sást á Íslandi.
- Skip sem Björn Einarsson Jórsalafari var á ásamt fleirum hraktist til Grænlands á leið frá Noregi og var teppt þar í tvö ár.
- Mikael biskup kom til Íslands þetta ár eða 1383 og varð biskup í Skálholti.
- Þorgils ábóti í Munkaþverárklaustri var settur af og Hallur, sem verið hafði munkur í Þingeyraklaustri, vígður í hans stað.
- Sveinbjörn Sveinsson var vígður ábóti í Þingeyraklaustri.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 25. desember - Þórður Jónsson helgi (Þórður góðimaður).
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 11. janúar - Úrbanus 4. páfi lét handtaka sex kardinála eftir að hann frétti að þeir hefðu verið að reyna að steypa honum af stóli. Þeir voru pyntaðir og teknir af lífi nema einn þeirra.
- 22. mars - Frakkar sendu skipsflota til Skotlands og 1.800 hermenn til að vernda það gegn enskri innrás.
- 6. maí - Giazo Visconti leiddi uppreisn gegn frænda sínum, Bernabò Visconti, lávarð Mílanó. Visconti hóf myndun Hertogadæmisins Mílanó.
- 8. júlí - Róbert 2. Skotakonungur sendi her skoskra og franskra hermanna til ensku sýslunnar Northumberland.
- 17. júlí - Karl 6. Frakkakonungur gekk að eiga Ísabellu af Bæjaralandi.
- 6. ágúst:
- Enski herinn réðst inn í Skotland frá Berwick-upon-Tweed.
- Játmundur af Langley, sonur Játvarðar 3., varð fyrsti Jórvíkurhertoginn.
- 11. ágúst - Englendingar brenndu og rændu Edinborg eftir að íbúar og hermenn hennar höfðu flúið.
- 14. ágúst:
- Orrustan við Aljubarrota: Jóhann af Avis vann sigur á Jóhanni 1. Kastilíukonungi og tryggði þar með sjálfstæði Portúgals. Hann var síðan krýndur konungur Portúgals sem Jóhann 1.
- Krewo-sambandið: Jadwiga, drottning Póllands og Jogaila, hertogi Litáens gengu í hjónaband.
- 15. ágúst - Franski herinn réðst inn í England og fóru um Cumberland á norðvestur-Englandi og olli þar eyðileggingu.
- 7. september - Skotar og Frakkar reyndu að ná ensku borginni Carlisle. Umsátrið mistókst og endaði stríð Englands og Skotlands með því.
- 1. nóvember - Sigmundur af Lúxemborg (síðar keisari heilaga rómverska ríkisins) giftist Maríu, drottningu Ungverjalands.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- (líklega) Jan van Eyck, flæmskur málari (d. 1441).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 28. júní - Andronikos 4. Palaiologos, meðkeisari í Býsansríkinu.
- 7. ágúst - Jóhanna af Kent, kona Játvarðar svarta prins (f. 1328).