Austurkarabískur dalur
Útlit
(Endurbeint frá XCD)
Austurkarabískur dalur | |
---|---|
Land | Antígva og Barbúda Bresk umráðasvæði (Angvilla og Montserrat) Dóminíka Grenada Sankti Kristófer og Nevis Sankti Lúsía Sankti Vinsent og Grenadíneyjar |
Skiptist í | sent |
ISO 4217-kóði | XCD |
Skammstöfun | $ |
Mynt | 5, 10 og 25 sent, 1 dalur |
Seðlar | 2, 5, 10, 20, 50, 100 dalir |
Austurkarabískur dalur (kóði: XCD) er gjaldmiðill notaður í átta löndum af þeim níu sem eru meðlimir í samtökum austur-karabískra ríkja. Undantekningin er Bresku Jómfrúaeyjar þar sem bandaríkjadalurinn er notaður.
Austurkarabíska gjaldmiðilssamstarfið er það minnsta af fjórum gjaldmiðlasamstörfum milli ríkja í heiminum (það stærsta er evran). Austurkarabíska gjaldmiðilssamstarfið var sett á laggirnar 1965 og leysti Vestur-Indíadalnum af hólmi. Austurkarabíski dalurinn er tengdur við bandaríkjadalinn á genginu 2,7 austkarabadalir = bandaríkjadalur.