Valur Ingimundarson
Valur Ingimundarson | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Valur Snjólfur Ingimundarson | |
Fæðingardagur | 20. mars 1963 | |
Fæðingarstaður | Ísland | |
Leikstaða | Framherji | |
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | |
1979–1988 1988–1993 1993–1995 1995–1998 1998–2002 2002–2004 |
Njarðvík Tindastóll Njarðvík BK Odense Tindastóll Skallagrímur | |
Landsliðsferill2 | ||
Ár | Lið | Leikir |
1988–1995 | Ísland | 164 |
1 Meistaraflokksferill |
Valur Snjólfur Ingimundarson, fæddur 20. febrúar 1962, er fyrrverandi landsliðsmaður í körfuknattleik.
Valur hóf að æfa körfuknattleik 15 ára gamall með liði UMFN. Hann lék með meistaraflokki félagsins í úrvalsdeild til ársins 1988, en þá gekk hann til liðs við Tindastól frá Sauðárkróki. Með þeim lék hann í fimm ár og skipti svo aftur í sitt gamla félag, UMFN. Þar vann hann tvo Íslandsmeistaratitla og fór í kjölfarið til Danmerkur í nám.
Þegar hann sneri aftur, tók hann við þjálfun Tindastóls næstu fjögur árin, og kom þeim m.a. í úrslit Íslandsmótsins 2001. Þar töpuðu hans menn fyrir UMFN.
Haustið 2002 tók Valur við þjálfun Skallagríms frá Borgarnesi. Liðið féll um vorið í 1. deild, en vann þá deild ári seinna. Vorið 2006 kom Valur Skallagrími í úrslit Íslandsmótsins þar sem liðið tapaði fyrir UMFN. Hann vék úr þjálfarastólnum ári seinna þegar Skallagrímur tapaði óvænt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar fyrir liði UMFG.
Vorið 2007 tók Valur sér svo frí frá þjálfun en haustið 2008 snéri hann á heimaslóðir og tók við liði Njarðvíkur aftur og enduðu þeir í 5. sæti á hans fyrsta ári en duttu út í 8-liða úrslitum fyrir erkifjendunum í Keflavík.
Valur er stigahæstur allra leikmanna í úrvalsdeild frá upphafi, hefur skorað 7.355 stig í 400 leikjum, eða 18,2 stig að meðaltali. Hann var valinn besti leikmaður úrvalsdeildar árin 1984, 1985 og 1988, og var auk þess valinn fimm sinnum í úrvalslið deildarinnar. Þá var hann valinn í lið aldarinnar, sem tilkynnt var snemma árs 2001, sem byrjunarliðsmaður.
Valur er næstleikjahæsti leikmaður landsliðsins, lék 164 leiki á árunum 1980-1995.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Leikni framar líkamsburðum eftir Skapta Hallgrímsson, útg. Körfuknattleikssamband Íslands 2001
- KKÍ.is