Svartá (Skagafirði)
Svartá er bergvatnsá í vestanverðum Skagafirði, innarlega. Allmikið lindavatn er í ánni inn til hálendisins en dragáreinkennin fara vaxandi er utar dregur. Hún kemur upp á Eyvindarstaðaheiði og rennur um Svartárdal og síðan milli Neðribyggðar og Reykjatungu. Þar er foss í ánni sem heitir Reykjafoss. Nokkru neðan hans, í grennd við Vindheimamela breytir áin um nafn og heitir eftir það Húseyjarkvísl. Hún fellur neðan við Varmahlíð og til Héraðsvatna skammt fyrir innan Glaumbæ.
Í fornritum kemur fram að Jökulsá, eða hluti af Héraðsvötnum, rann þá vestur með Vindheimabrekkunum, og rann Svartá þá í jökulvatnið á þeim stað sem áin skiptir nú um nafn.
Margar ár á Íslandi bera nafnið Svartá. Flestar falla þær í jökulár og vatn þeirra, eða öllu heldur árbotninn, sýnist mjög dökkleitur, jafnvel svartur, í samanburði við hið ljósa og skollitaða jökulvatn. Þetta hefur vafalítið oftast orðið tilefni nafngiftarinnar.
Einkennistölur
[breyta | breyta frumkóða]- Dragá og lindá
- Lengd: Svartá 40 km, Húseyjarkvísl 19 km
- Rennslismælir: Nr. 10, við Reykjafoss
- Mælitímabil: 1964–2007
- Vatnasvið ofan mælis: 393 km², vatnasvið alls: 432 km²
- Meðalrennsli: 10,5 m³/s
- Hámarksrennsli: 183 m³/s (augnabliksrennsli)