Richard Francis Burton
Richard Francis Burton (19. mars 1821 – 19. október 1890) var breskur landkönnuður, þýðandi, rithöfundur og Austurlandafræðingur. Hann varð frægur fyrir ævintýralega könnunarleiðangra sína um Mið-Austurlönd og Austur-Afríku sem hann skrifaði um margar bækur, og einnig fyrir þýðingar sínar á ritum eins og Þúsund og einni nótt og Kama Sútra.
Þekktustu ferðir hans voru þegar hann ferðaðist, dulbúinn sem pastúni, til Mekka, ferðir hans um Austur-Afríku ásamt John Hanning Speke til að leita upptaka Hvítu Nílar, og heimsókn hans til Brigham Young í Salt Lake City. Hann var annálaður málamaður og skylmingamaður.
Að síðustu gekk hann í bresku utanríkisþjónustuna og varð ræðismaður í Damaskus, Fernando Po og Trieste. Hann var aðlaður af Viktoríu Bretadrottningu árið 1886.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Richard Burton; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1965
- Sir Richard F. Burton on the Web Geymt 19 febrúar 2009 í Wayback Machine
- Netútgáfur af verkum Burtons Geymt 4 júlí 2008 í Wayback Machine
- Sir Richard Francis Burton og Gordon höfuðsmaður
- Evrópskir (kristnir) ferðamenn til Mekka Geymt 17 júní 2012 í Wayback Machine.