Kirtilflóki
Kirtilflóki | ||||||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||||||||
Rhododendron columbianum (Piper) Harmaja | ||||||||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||||||||
|
Kirtilflóki (fræðiheiti: Rhododendron columbianum (áður Ledum glandulosum eða Ledum columbianum), er ilmandi runni í undirdeildinni Ledum í lyngrósaættkvísl (Rhododendron) í lyngætt. Hann vex í vesturhluta Bandaríkjanna og Vestur-Kanada; í Bresku-Kólumbíu, Alberta, Washington, Oregon, Idaho, Kaliforníu, Montana, Wyoming, Utah, Nevada, og Colorado. Kirtilflóki vex á votlendi frá sjávarmáli upp í 3500m hæð.[1]
Lýsing
[breyta | breyta frumkóða]Kirtilflóki er runni sem verður að 2 m hár, og breiðist m. a. út með rótarskotum. Sígræn blöðin eru egglaga til lensulaga, og ilma þegar þau eru kramin. Blómin eru hvít til rjómalit, 10 til 35 saman í klasa.[2]
Nytjar
[breyta | breyta frumkóða]Kirtilflóki hefur verið notaður í te vegna herpandi, svitadrífandi, vatnslosandi og hægðalosandi eiginleika. Teið getur orðið eitrað ef laufin eru látin liggja of lengi. Lyktin af blöðunum hafa sýnt virkni við að fæla í burt skordýr og nagdýr.[3][4]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Flora of North America v 8 p 459“. Afrit af upprunalegu geymt þann 5. mars 2021. Sótt 13. janúar 2019.
- ↑ Harmaja, Harri (1990). „Ledum glandulosum“. Annales Botanici Fennici. 27 (2): 203.
- ↑ „Ledum columbianum - Piper“. Plants for a Future.
- ↑ Plants for a Future, The Goddess Project Geymt 21 febrúar 2014 í Wayback Machine „Plants for a Future, at the Wayback Machine“.