Fara í innihald

Leo Varadkar

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Leo Varadkar
Leo Varadkar árið 2020.
Forsætisráðherra Írlands
Í embætti
17. desember 2022 – 9. apríl 2024
ForsetiMichael D. Higgins
ForveriMicheál Martin
EftirmaðurSimon Harris
Í embætti
14. júní 2017 – 27. júní 2020
ForsetiMichael D. Higgins
ForveriEnda Kenny
EftirmaðurMicheál Martin
Persónulegar upplýsingar
Fæddur18. janúar 1979 (1979-01-18) (45 ára)
Dyflinni, Írlandi
ÞjóðerniÍrskur
StjórnmálaflokkurFine Gael
MakiMatthew Barrett
TrúarbrögðKaþólskur
HáskóliTrinity-háskólinn í Dyflinni
Vefsíðaleovaradkar.ie

Leo Varadkar (fæddur 18. janúar 1979 í Dublin) er írskur stjórnmálamaður, fyrrverandi leiðtogi flokksins Fine Gael og fyrrverandi forsætisráðherra (Á írsku: Taoiseach) Írlands. Hann hefur verið þingmaður frá 2007 og gegnt forystuembætti í ráðuneyti samgangna, ferðamennsku og íþrótta (2011-2014), í heilbrigðisráðuneyti (2014-2016) og í félagsmálaráðuneyti (2016-2017).

Varadkar er sonur Ashoks indversks læknis og Miriam, írsks hjúkrunarfræðings. Faðir hans fæddist í Mumbai og flutti til Írlands á 7. áratugnum. Fjölskyldan bjó um skeið í Leicester á Englandi og á Indlandi. Leo Varadkar lærði læknisfræði í Trinity College í Dublin en fór síðar út í stjórnmálastarf og var kosinn í neðri deild írska þingsins, Dáil Éireann, árið 2007. Hann kom fyrst opinberlega út sem samkynhneigður árið 2015 og var fyrsti ráðherrann á Írlandi til þess. Varadkar varð einnig fyrsti samkynhneigði forsætisráðherra landsins og tók við embætti sumarið 2017. Maki hans er einnig læknir.

Varadkar sagði af sér forsætisráðherraembættinu eftir kosningar í byrjun árs 2020 þegar írska þingið gat ekki komið sér saman um forsætisráðherra en leiddi starfsstjórn þar til búið var að mynda nýja stjórn.[1] Eftir um fjögurra mánaða stjórnarkreppu féllust flokkarnir Fine Gael, Fianna Fáil og Græni flokkurinn á að mynda stjórn með Micheál Martin, formann Fianna Fáil, sem forsætisráðherra. Samkvæmt stjórnarsáttmálanum varð Varadkar þó aftur forsætisráðherra á seinni helmingi kjörtímabilsins, frá desember 2022.[2]

Varadkar tilkynnti þann 20. mars 2024 að hann hygðist segja af sér sem leiðtogi Fine Gael og hætta sem forsætisráðherra strax og búið væri að kjósa nýjan flokksleiðtoga.[3] Simon Harris var kjörinn nýr leiðtogi flokksins þann 24. mars.[4]

Fyrirmynd greinarinnar var „Leo Varadkar“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 3. júní 2017.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Atli Ísleifsson (21. febrúar 2020). „For­sætis­ráð­herra Ír­lands segir af sér“. Vísir. Sótt 21. febrúar 2020.
  2. Atli Ísleifsson (15. júní 2020). „Martin verður næsti for­sætis­ráð­herra Ír­lands“. Vísir. Sótt 15. júní 2020.
  3. Atli Ísleifsson (20. mars 2024). „Vara­dkar hættir sem for­sætis­ráð­herra“. Vísir. Sótt 21. mars 2024.
  4. Rafn Ágúst Ragnarsson (24. mars 2024). „Simon Harris nýr leið­togi Fine Gael“. Vísir. Sótt 24. mars 2024.


Fyrirrennari:
Enda Kenny
Forsætisráðherra Írlands
(14. júní 201727. júní 2020)
Eftirmaður:
Micheál Martin
Fyrirrennari:
Micheál Martin
Forsætisráðherra Írlands
(17. desember 20229. apríl 2024)
Eftirmaður:
Simon Harris