John L. Austin
Útlit
Vestræn heimspeki Heimspeki 20. aldar | |
---|---|
Nafn: | John Langshaw Austin |
Fæddur: | 28. mars 1911 |
Látinn: | 8. febrúar 1960 (48 ára) |
Skóli/hefð: | Rökgreiningarheimspeki, Oxford heimspeki |
Helstu ritverk: | How to Do Things with Words, Philosophical Papers, Sense and sensibilia |
Helstu viðfangsefni: | málspeki, hugspeki, siðfræði |
Markverðar hugmyndir: | málgjörðir, íbyggni |
Áhrifavaldar: | G.E. Moore, Bertrand Russell, Gilbert Ryle |
Hafði áhrif á: | John Searle, R.M. Hare |
John Langshaw Austin (28. mars 1911 – 8. febrúar 1960) var breskur heimspekingur, sem fékkst einkum við málspeki og átti mestan þátt í að þróa kenninguna um málgjörðir.
Hann fæddist í Lancaster og var menntaður í Balliol College í Oxford.
Hann starfaði í MI6 leyniþjónustunni í síðari heimsstyrjöldinni en að því loknu tók Austin við stöðu prófessors White í siðfræði við University of Oxford. Þáttur hans í sögu breskrar málspeki er afar mikilvægur. Ásamt Ludwig Wittgenstein lagði hann ríka áherslu á að notkun orða skyldi rannsökuð til að varpa ljósi á merkingarhugtakið.
Helstu ritverk
[breyta | breyta frumkóða]- How to Do Things with Words (J.O. Urmson ritstj.) (1962/1975) ISBN 0-674-41152-8
- Philosophical Papers, (J.O. Urmson og G.J. Warnock ritstj.) (1961/1980) ISBN 0-19-283021-X
- Sense and sensibilia (1959/1979) ISBN 0-19-500307-1
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Fyrirmynd greinarinnar var „J. L. Austin“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 17. október 2005.
Frekara lesefni
[breyta | breyta frumkóða]- Kirkham, Richard, Theories of Truth (Cambridge, Mass.: MIT Press, 1992). Kafli 4 inniheldur ítarlega umfjöllun um sannleikskenningu Austins.