Fara í innihald

JD Vance

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
JD Vance
Varaforseti Bandaríkjanna
Tekur við embætti
20. janúar 2025
ForsetiDonald Trump
ForveriKamala Harris
Öldungadeildarþingmaður fyrir Ohio
Núverandi
Tók við embætti
3. janúar 2023
ForveriRob Portman
Persónulegar upplýsingar
Fæddur2. ágúst 1984 (1984-08-02) (40 ára)
Middletown, Ohio, Bandaríkin
StjórnmálaflokkurRepúblikanaflokkurinn
MakiUsha Chilukuri (g. 2014)
Börn3
StarfStjórnmálamaður, kaupsýslumaður, hermaður, rithöfundur
Undirskrift

James David Vance (f. 2. ágúst 1984) er bandarískur stjórnmálamaður og öldungadeildarþingmaður fyrir Ohio-ríki frá 2023 til 2025 og nýkjörinn 50. varaforseti Bandaríkjanna frá 2025. Hann var varaforsetaefni Donald Trumps í forsetakosningum í Bandaríkjunum 2024.[1] Donald Trump sigraði forsetakosningarnar og verður næsti forseti Bandaríkjanna og JD Vance tekur því við embætti varaforseta 20. janúar 2025.[2]

Vance ólst upp í stáliðnaðarbænum Middletown í Ohio. Móðir hans var fíkill og Vance segist sumpart hafa alið sig upp sjálfur þegar ástand hennar var með versta móti. Þegar hann var í tíunda bekk flutti hann til ömmu sinnar. Hann gekk í landgöngulið Bandaríkjahers til þess að geta átt efni á námi við Ríkisháskólann í Ohio. Hann útskrifaðist þaðan með glæsibrag og lærði síðan lögfræði við Yale-háskóla.[3]

Vance varð frægur í Bandaríkjunum árið 2016 þegar hann gaf út sjálfsævisöguna Hillbilly Eligy. Í bókinni lýsti Vance uppvexti sínum við fátæklegar aðstæður í Ohio. Bókin var síðar gerð að kvikmynd af streymiveitunni Netflix.[3]

Á námsárum sínum í Yale kynntist Vance auðmanninum og frjálshyggjumanninum Peter Thiel, sem er gjarnan talinn hafa komið Vance til metorða. Thiel réð Vance í vinnu hjá fjárfestingarfyrirtæki sínu árið 2017 og hjálpaði honum að klífa metorðastigann innan Repúblikanaflokksins. Thiel fjármagnaði jafnframt framboð Vance til öldungadeildar Bandaríkjaþings fyrir Ohio árið 2022 og hjálpaði honum að koma sér upp tengslaneti í tæknigeiranum.[4]

Vance var andsnúinn Trump fyrir forsetakosningarnar 2016 og var bendlaður við „Never Trump“-hreyfinguna innan Repúblikanaflokksins. Árið 2016 skrifaði hann skilaboð til vinar síns sem síðar var lekið, þar sem hann sagði: „Ég get ekki ákveðið hvort mér þyki Trump bituryrtur fáviti eins og Nixon, sem væri ekki sem verst (og gæti reynst gagnlegt) eða hvort hann sé Hitler Ameríku.“[5]

Vance fór að styðja Trump eftir að Trump var kjörinn forseti. Honum tókst að fá stuðningsyfirlýsingu Trumps þegar hann bauð sig fram í forvali Repúblikanaflokksins fyrir öldungadeildarþingskosningar í Ohio árið 2022. Vance vann tilnefningu flokksins og var kjörinn á þing í kjölfarið.[3] JD Vance var kjörinn varaforseti í forsetakosningunum 2024 og tekur við embætti af Kamölu Harris þann 20. janúar 2025. Hann mun segja af sér þingmennsku áður en hann tekur við embætti varaforseta.[6]

JD Vance er 188 sentímetrar á hæð.[heimild vantar]

Stjórnmálaskoðanir

[breyta | breyta frumkóða]

Vance hefur ítrekað gagnrýnt fólk, sér í lagi konur, sem velur að eignast ekki börn. Í viðtali árið 2020 sagði hann að barnleysi gerði fólk siðspillt og drægi úr stöðugleika samfélagsins. Vance hefur jafnframt viðrað þá skoðanir að atkvæði barnafjölskyldna ættu að vega þyngra en barnlauss fólks í kosningum.[4] Árið 2021 lét hann þau orð falla að Demókrataflokkurinn samanstæði af „barnlausum kattarkonum sem lifi í eymd“ og vilji gera annað fólk óhamingjusamt vegna óánægju þeirra með líf sitt og val. Vance hefur í seinni tíð sagt ummælin hafa verið í kaldhæðni, en hefur þó ítrekað að hann telji stefnu Demókrataflokksins fjandsamlega barneignum.[7]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Þorgerður Anna Gunnarsdóttir (15. júlí 2024). „J.D. Vance verður varaforsetaefni Donalds Trumps“. RÚV. Sótt 15. júlí 2024.
  2. Ragnarsson, Samúel Karl Ólason,Jón Þór Stefánsson,Tómas Arnar Þorláksson,Rafn Ágúst (11. maí 2024). „Vaktin: For­seta­kosningar í Banda­ríkjunum - Vísir“. visir.is. Sótt 6. nóvember 2024.
  3. 3,0 3,1 3,2 Hermann Nökkvi Gunnarsson (16. júlí 2024). „Sveitalubbinn með Hvíta húsið í sigtinu“. mbl.is. Sótt 25. júlí 2024.
  4. 4,0 4,1 „Varaforsetaefnið sem setti allt á hliðina með því að hjóla í konur og ketti – Alræmdi sófinn, grunsamlegir höfrungar og öfgafullar skoðanir“. DV. 7. ágúst 2024. Sótt 15. ágúst 2024.
  5. Sólrún Dögg Jósefsdóttir (15. júlí 2024). „Kallaði Trump „Hitler Ameríku" og studdi Never Trump-hreyfinguna“. Vísir. Sótt 16. júlí 2024.
  6. Main, Eric Bradner, Alison (6. nóvember 2024). „Trump critic turned ally JD Vance elected vice president, offering glimpse at GOP's potential future | CNN Politics“. CNN (enska). Sótt 6. nóvember 2024.
  7. Jón Ísak Ragnarsson (27. júlí 2024). „Út­skýrir um­mælin um barn­lausar kattar­konur“. Vísir. Sótt 2. september 2024.