Fara í innihald

Guðjón Arnar Kristjánsson

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Guðjón A. Kristjánsson)
Guðjón Arnar Kristjánsson (GAK)
Alþingismaður
frá til  kjördæmi    þingflokkur
1999 2003  Vestf.  Frjálslyndi fl.
2003 2009  Norðvestur  Frjálslyndi fl.
Persónulegar upplýsingar
Fæddur5. júlí 1944(1944-07-05)
Ísafirði, Íslandi
Látinn17. mars 2018 (73 ára) Reykjavík, Íslandi
StjórnmálaflokkurFrjálslyndi flokkurinn
MakiBjörg Hauksdóttir (skilin)
Maríanna Barbara Kristjánsson (g. 1989)
Börn6
Æviágrip á vef Alþingis

Guðjón Arnar Kristjánsson (5. júlí 194417. mars 2018) var íslenskur stjórnmálamaður og formaður Frjálslynda flokksins. Guðjón var fyrrverandi skipstjóri og fjallaði mikið um sjávarútvegsmál og hagsmuni sjómanna. Vegna þessa var hann af mörgum talinn talsmaður landsbyggðarinnar.

Guðjón var sonur Kristjáns Sigmundar Guðjónssonar og konu hans, Jóhönnu Jakobsdóttur. Fyrir stjórnmálaferilinn fékkst Guðjón við sjómennsku, hann lauk stýrimannanámi við Stýrimannaskólann í Reykjavík og var skipstjóri í þrjá áratugi. Guðjón var formaður Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Bylgjunnar 1975-1984 og forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands 1983-1999. Guðjón var meðlimur í Sjálfstæðisflokknum líkt og Sverrir Hermannsson en árið 1999 sögðu þeir sig frá honum og stofnuðu Frjálslynda flokkinn. Guðjón hafði þann siðinn að halda ræður einhverstaðar á landinu á Sjómannadeginum.

Guðjón lýsti sig andsnúinn stuðningi íslenskra stjórnvalda við stríðið í Írak. [1] Frjálslyndi flokkurinn var gagnrýndur fyrir umburðarlitla afstöðu sína gagnvart innflytjendum. Guðjón hélt því sjálfur fram t.d. að undirboð erlends vinnuafls skaðaði starfsaldurtengd lífeyrisréttindi íslenskra iðnaðarmanna. [2]

  Þetta æviágrip sem tengist stjórnmálum og Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.