Forest Whitaker
Forest Whitaker | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fæddur | Forest Steven Whitaker 15. júlí 1961 |
Ár virkur | 1982 - |
Helstu hlutverk | |
Stóri Harold í Platoon Edward Garlick í Good Morning, Vietnam Charlie Bird Parker í Bird Jody í The Crying Game Ghost Dog í Ghost Dog: The Way of the Samurai Idi Amin í The Last King of Scotland Jon Kavanaugh í The Shield |
Forest Whitaker (fæddur Forest Steven Whitaker, 15. júlí 1961) er bandarískur leikari, leikstjóri og kvikmyndaframleiðandi sem er þekktastur fyrir hlutverk sín í The Last King of Scotland, Platoon, Bird, Good Morning, Vietnam, The Crying Game og Ghost Dog: The Way of the Samurai.
Einkalíf
[breyta | breyta frumkóða]Fjölskylda
[breyta | breyta frumkóða]Whitaker fæddist í Longview, Texas en ólst upp í Los Angeles. [1] Sem unglingur gekk Whitaker í Palisades-menntaskólann[1] þar sem hann æfði amerískan fótbolta.[2] Í menntaskóla tók hann söngtíma, kom fram í söngleikjum og tók upp leiklistina. Þar lék hann í sínu fyrsta hlutverki í Under Milk Wood.[1] Whitaker stundaði nám við California State Polytechnic háskólann (Cal Poly Pomona) í Pomona, Kaliforníu á íþróttastyrk en vegna bakmeiðsla, þá breytti hann aðalfaginu yfir í tónlist (söng). [3] Whitaker ferðaðist um England með "Cal Poly Chamber" kórnum árið 1980. Skipti hann stuttlega um fag við Cal Poly, yfir í drama. Whitaker komst inn í tónlistardeildina við Suður-Kaliforníuháskólann til þess að læra óperusöng, ásamt því að komast inn í dramadeildina við skólann.[2] Whitaker útskrifaðist árið 1982 og hafði hann fengið skólastyrk til að stunda nám við Drama Studio London sem staðsett er í Berkeley, Kaliforníu.[4]
Þann 16. apríl 2007, fékk Whitaker stjörnu á Walk of Fame göngugötuna og er staðsett á 6801 Hollywood Blvd.
Whitaker giftist leikkonunni Keisha Nash árið 1996, saman eiga þau fjögur börn: tvær dætur saman, son hans úr fyrra sambandi og dóttur hennar úr fyrra sambandi.
Augnsjúkdómur
[breyta | breyta frumkóða]Whitaker fæddist með augnsjúkdóminn ptosis í vinstra auganu, sem þýðir drúpandi augnlok. Hefur hann sagt að sjúkdómurinn sé arfgengur og að hann hafi hugsað um að láta laga augað með skurðaðgerð þar sem hann hefur áhrif á sjón hans.[5]
Góðgerðarmál
[breyta | breyta frumkóða]Whitaker er grænmetisæta.[6] Whitaker og dóttir hans True, töluðu inn á kynningarmyndband fyrir almenning til þess að kynna grænmetishyggju fyrir People for the Ethical Treatment of Animals (PETA). [7] Whitaker er stuðningsaðili og talsmaður góðgerðarsamtakanna Hope North, sem er heimavistar-og verknámsskóli í norður Úganda fyrir barnahermenn, heimilislaus börn og önnur ung fórnarlömb borgarastríðsins í landinu.[8]
Stjórnmál
[breyta | breyta frumkóða]Whitaker var stuðningsmaður Baracks Obama í forsetakosningunum árið 2008.[9] Þann 6. apríl, 2009, var Whitaker gefinn höfðingjatitill í Imo ríkinu í Nígeríu. Whitaker, var gerður að höfðingja á meðal Igbo fólksins í Nkwerre og var gefinn titilinn Nwannedinamba of Nkwerre, sem þýðir Bróðir í framandi landi.
Ferill
[breyta | breyta frumkóða]Sjónvarp
[breyta | breyta frumkóða]Fyrsta sjónvarpshlutverk Whitaker var árið 1982 í Making the Grade. Kom hann síðan fram í þáttum á borð við Hill Street Blues, The Fall Guy og North and South. Frá 2006-2007 þá lék Whitaker gestahlutverk í ER sem Curtis Ames og á samatíma þá var hann með gestahlutverk í The Shield sem Lieutenant Jon Kavanaugh. Árið 2010 þá tilkynnti CBS að búið væri að ráða Whitaker í hlutverk Sam Coopers í Criminal Minds: Suspect Behavior.[10][11] Hætt var við framleiðslu á þættinum eftir aðeins 13 þætti vegna lélegs áhorfs.[12]
Kvikmyndir
[breyta | breyta frumkóða]Fyrsta kvikmyndahlutverk Whitaker var árið 1982 í Tag: The Assassination Game. Whitaker lék fótboltaleikmann í Fast Times at Ridgemont High þar sem hann lék á móti Judge Reinhold, Phoebe Cates og Sean Penn.
Árið 1986 lék hann í The Color of Money með Paul Newman og Tom Cruise og í Platoon. Árið eftir lék hann í Good Morning, Vietnam á móti Robin Williams. Árið 1988 var Whitaker boðið hlutverk Charlie Bird Parker í Bird sem var leikstýrt af Clint Eastwood. Síðan árið 1992 var hann ráðinn af Neil Jordan í hlutverk Jody í The Crying Game. Whitaker lék mafíu leigumorðingjann Ghost Dog í Ghost Dog: The Way of the Samurai árið 1999. Kom Whitaker síðan fram í kvikmyndum á borð við Battlefield Earth: A Saga of the Year 3000, Panic Room og Phone Booth.
Whitaker lék eitt af aðalhlutverkunum í kvikmynd Baltasars Kormáks, A Little Trip to Heaven, þar sem hann lék Abe Holt.
Árið 2006 var Whitaker boðið hlutverk hershöfðingjans Idi Amin í The Last King of Scotland sem átti að verða leikstýrt af Kevin MacDonald. Fyrir hlutverk sitt í myndinni þá vann Whitaker Óskarsverðlaunin, Golden Globe verðlaunin, BAFTA verðlaunin, Screen Actors Guild-verðlaunin, New York Film Critics Circle verðlaunin og Los Angeles Film Critics Association verðlaunin meðal annars.
Hefur Whitaker síðan þá komið fram í kvikmyndum á borð við Ripple Effect, Vantage Point, Street Kings, Where the Wild Things Are, Repo Men og The Experiment.
Leikstjórn
[breyta | breyta frumkóða]Whitaker hefur leikstýrt þrem kvikmyndum Waiting to Exhale, Hope Floats og First Daughter. Einnig hefur hann leikstýrt tveimur sjónvarpsmyndum.
Kvikmyndir og sjónvarp
[breyta | breyta frumkóða]Kvikmyndir | |||
---|---|---|---|
Ár | Kvikmynd | Hlutverk | Athugasemd |
1982 | Tag: The Assassination Game | Lífvörður Gowdys | |
1982 | Fast Times at Ridgemont High | Charles Jefferson | |
1985 | Vision Quest | Balldozer | |
1986 | The Color of Money | Amos | |
1986 | Platoon | Stóri Harold | |
1987 | Stakeout | Jack Pismo | |
1987 | Goo Morning, Vietnam | Edward Garlick | |
1988 | Bloodsport | Rawlins | |
1988 | Bird | Charlie ´Bird´ Parker | |
1989 | Johnny Handsome | Dr. Steven Fisher | |
1990 | Downtown | Dennis Curren | |
1991 | A Rage in Harlem | Jackson | |
1991 | Diary of a Hitman | Dekker | |
1992 | Article 99 | Dr. Sid Handleman | |
1992 | The Crying Game | Jody | |
1992 | Consenting Adults | David Duttonville | |
1993 | Body Snatchers | Majór Collins | |
1993 | Bank Robber | Lögreglumaðurinn Battle | |
1994 | Blown Away | Anthony Franklin | |
1994 | Jason´s Lyric | Maddog | |
1994 | Prêt-à-Porter | Cy Bianco | |
1995 | Smoke | Cyrus Cole | |
1995 | Species | Dan Smithson, Empath | |
1995 | Mr. Holland´s Opus | Kidd | óskráður á lista |
1996 | Phenomenon | Nate Pope | |
1998 | Body Count | Crane | |
1999 | Ghost Dog: The Way of the Samurai | Ghost Dog | |
1999 | Light It Up | Lögreglumaðurinn Dante Jackson | |
2000 | Battlefield Earth: A Saga of the Year 3000 | Ker | |
2000 | Four Dogs Playing Poker | Mr. Ellington | |
2001 | Green Dragon | Addie | |
2001 | The Follow | The Employer | óskráður á lista |
2001 | The Fourth Angel | Fulltrúinn Jules Bernard | |
2002 | Panic Room | Burnam | |
2002 | Phone Booth | Kapteinn Ed Ramey | |
2004 | First Daughter | Kynnir | Talar inn á |
2005 | Mary | Ted Younger | |
2005 | A Little Trip to Heaven | Abe Holt | |
2005 | American Gun | Carter | |
2006 | Even Money | Clyde Snow | |
2006 | The Marsh | Geoffrey Hunt | |
2006 | The Last King of Scotland | Idi Amin | |
2006 | Everyone´s Hero | Lonnie Brewster | Talaði inn á |
2007 | The Air I Breathe | Hamingja (Happiness) | |
2007 | Ripple Effect | Philip | |
2007 | The Great Debaters | Dr. James Farmer Sr. | |
2008 | Vantage Point | Howard Lewis | |
2008 | Chasseurs de Dragons | Lian-Chu | Talaði inn á ensku útgáfuna |
2008 | Street Kings | Kapteinn Jack Wander | |
2008 | Winged Creatures | Charlie Archenault | |
2009 | Powder Blue | Charlie | |
2009 | Where the Wild Things Are | Ira | Talaði inn á |
2009 | Hurricane Season | Al Collins | |
2010 | Our Family Wedding | Brad Boyd | |
2010 | Repo Men | Jake | |
2010 | My Own Love Song | Joey | |
2010 | The Experiment | Barris | |
2010 | Lullaby for Pi | George | |
2011 | Catch .44 | Ronny | |
2012 | Freelancers | LaRue | |
2012 | Ernest et Célestine | Ernest | Talaði inn á |
2012 | The Truth | Francisco Francis | |
2013 | Last Stand | Alríkisfullrúinn John Bannister | |
2013 | Receptence | Angel Sanchez | |
2013 | Pawn | Will | |
2013 | Zulu | Ali Sokhela | |
2013 | The Butler | Cecil Gaines | |
2013 | Out of the Furnace | Stjórinn Wesley Barnes | |
2013 | Making a Scene | Maður | |
2013 | Black Nativity | Presturinn Cornell Cobbs | |
2014 | Two Men in Town | William Garnett | |
2014 | Taken 3 | Frank Dotzler | |
2014 | Dope | Þulur | Talaði inn á |
2016 | Rogue One: A Star Wars Story | Saw Gerrera | |
2018 | Black Panther | Zuri | |
Sjónvarp | |||
Ár | Titill | Hlutverk | Athugasemd |
1982 | Making the Grade | ónefnt hlutverk | Þáttur: Marriage, Dave Style |
1983 | Cagney & Lacey | Næturvörður | Þáttur: The Grandest Jewel Thief of Them All |
1984 | Trapper Joh, M.D. | Lewis Jordan | Þáttur: School Nurse |
1984 | Hill Street Blues | Floyd Green | Þáttur: Blues for Mr. Green |
1985 | The Grand Baby | ónefnt hlutverk | Sjónvarpsmynd |
1985 | The Fall Guy | Vinur | Þáttur: Spring Break |
1985 | Diff´rent Strokes | Herman | Þáttur: Bully for Arnold |
1985 | North and South | Cuffey | 6 þættir |
1986 | Amazing Stories | Jerry | Þáttur: Gather Ye Acorns |
1986 | North and South, Book II | Cuffey | 6 þættir |
1987 | Hands of a Stranger | Sergeant Delaney | Sjónvarpsmynd |
1990 | Criminal Justice | Jessie Williams | Sjónvarpsmynd |
1993 | Last Light | Fred Whitmore | Sjónvarpsmynd |
1993 | Lush Life | Buddy Chester | Sjónvarpsmynd |
1994 | The Enemy Within | Colonel MacKenzie ´Mac´ Casey | Sjónvarpsmynd |
1996 | Rebound: The Legend of Earl ´The Goat´ Manigault | Mr. Rucker | Sjónvarpsmynd |
1999 | Witness Protection | Steven Beck | Sjónvarpsmynd |
2001 | Feast of All Saints | Daguerreotypist Picard | Sjónvarpsmynd |
2002-2003 | The Twilight Zone | Hann sjálfur/Kynnir | 44 þættir |
2005 | Deacons for Defence | Marcus Clay | Sjónvarpsmynd |
2006-2007 | ER | Curtis Ames | 6 þættir |
2006-2007 | The Shield | Lieutenant Jon Kavanaugh | 13 þættir |
2007-2009 | American Dad | Turlington | 3 þættir |
2010 | Criminal Minds | Sam Cooper | Þáttur: The Fight |
2011 | Criminal Minds: Suspect Behavior | Sam Cooper | 13 þættir |
Verðlaun og tilnefningar
[breyta | breyta frumkóða]AFI verðlaunin
- 2014: Verðlaun fyrir bestu mynd ársins fyrir Fruitvale Station ásamt Nina Yang Bongiovi.
Acapulco Black Film Festival
- 2014: Tilnefndur sem listamaður ársins fyrir Out of the Furnace, The Butler, Black Nativity og Fruitvale Station.
- 2014: Tilnefndur sem besti leikhópur fyrir The Butler.
- 2014: Tilnefndur sem besti leikhópur fyrir Black Nativity.
- 2014: Tilnefndur sem besti leikari fyrir The Butler.
- 2014: Tilnefndur fyrir bestu mynd ársins fyrir Fruitvale Station ásamt Nina Yang Bongiovi.
- 1999: Tilnefndur sem besti leikstjóri fyrir Hope Floats.
African-American Film Critics Association verðlaunin
- 2013: Verðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir The Butler.
- 2006: Verðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir The Last King of Scotland.
BAFTA verðlaunin
- 2007: Verðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir The Last King of Scotland.
BET verðlaunin
- 2007: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
Biarritz International Festival of Audiovisual Programming verðlaunin
- 1992: Verðlaun sem besti leikari fyrir Criminal Justice – sérstök nefning.
Black Reel verðlaunin
- 2014: Tilnefndur fyrir bestu myndina fyrir Fruitvale Station ásamt Nina Yang Bongoiovi.
- 2014: Tilnefndur sem besti leikari fyrir The Butler.
- 2010: Tilnefndur fyrir bestu talsetningu fyrir Where the Wild Things Are.
- 2007: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
- 2004: Verðlaun sem besti leikari í sjónvarpsmynd fyrir Deacons for Defense.
- 2004: Tilnefndur sem besti leikari í aukahlutverki fyrir Phone Booth.
- 2003: Tilnefndur sem besti leikari í aukahlutverki fyrir Panic Room.
Blockbuster Entertainment verðlaunin
- 1997: Verðlaun sem uppháhalds leikari í aukahlutverki fyrir Phenomenon.
Boston Society of Film Critics verðlaunin
- 2006: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
British Independent Film verðlaunin
- 2006: Tilnefndur sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
Broadcast Film Critics Association verðlaunin
- 2014: Joel Siegel verðlaunin.
- 2006: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
CableACE verðlaunin
- 1994: Tilnefndur sem besti leikari í kvikmynd eða míniseríu fyrir Last Night.
Cannes Film Festival
- 1988: Verðlaun sem besti leikari fyrir Bird.
Capri, Hollywood
- 2006: Capri Legend verðlaunin.
Chicago Film Critics Association verðlaunin
- 2006: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
Dallas-Fort Worth Film Critics Association verðlaunin
- 2006: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
Deauville Film Festival
- 1993: Tilnefndur fyrir sjónvarpsmyndina Strapped.
Emmy verðlaunin
- 2010: Tilnefndur fyrir bestu heimildarmynd fyrir Brick City með Marc Levin, Mark Benjamin og Mala Chapple.
- 2007: Tilnefndur sem besti leikari í gestahlutverki í dramaseríu fyrir ER.
- 2003: Tilnefndur fyrir bestu sjónvarpsmyndina fyrir Door to Door með David A. Rosemont, Dan Angel, Billy Brown, Robert J. King og Warren Carr.
Florida Film Critics Circle verðlaunin
- 2006: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
Golden Globes verðlaunin
- 2007: Verðlaun sem besti leikari í dramamynd fyrir The Last King of Scotland.
- 1989: Tilnefndur sem besti leikari í dramamynd fyrir Bird.
Gotham verðlaunin
- 2013: Tribute verðlaunin.
- 2013: Tilnefndur til áhorfendaverðlauna fyrir Fruitvale Station ásamt Ryan Coogler og Nina Yang Bongiovi
Hollywood Film Festival
- 2006: Verðlaun sem leikari ársins.
Image verðlaunin
- 2014: Verðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir The Butler.
- 2014: Chairman´s verðlaunin.
- 2008: Tilnefndur sem besti leikari í aukahlutverki fyrir The Great Debaters.
- 2007: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
- 2004: Tilnefndur sem besti leikari í sjónvarpsmynd fyrir Deacons for Defense.
- 2004: Tilnefndur sem besti leikari í aukahlutverki fyrir Phone Booth.
- 1997: Tilnefndur sem besti leikari í aukahlutverki fyrir Phenomenon.
Independent Spirit verðlaunin
- 2014: Verðlaun sem besta myndin fyrir Fruitval Station ásamt Ryan Coogler og Nina Yang Bongiovi.
- 2007: Tilnefndur sem besti leikari fyrir American Gun.
International Documentary Association verðlaunin
- 2010: Tilnefndur fyrir áframhaldandi seríu fyrir Brick City ásamt Evan Shapiro, Lynne Kirby, Mala Chapple, Marc Levin, Mark Benjamin og Sarah Barnett.
- 2008: Tilnefndur sem besta heimildarmyndin fyrir Kassum the Dream ásamt Kief Davidson, Liz Silver, Keisha Whitaker og Joshua A. Green.
International Online Film Critics´ Pollverðlaunin
- 2009: Tilnefndur sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
Iowa Film Criticts verðlaunin
- 2007: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
Kansas City Film Critics Circle verðlaunin
- 2007: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
Las Vegas Film Critics Society verðlaunin
- 2006: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
London Critics Circle Film verðlaunin
- 2007: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
Los Angeles Film Critics Association verðlaunin
- 2006: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
NAMIC Vision verðlaunin
- 2007: Verðlaun sem besti leikari í dramaseríu fyrir The Shield.
- 2004: Tilnefndur sem besti leikari í sjónvarpsmynd fyrir Deacons for Defense.
National Board of Review, USA
- 2006: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
- 1994: Verðlaun sem besti leikhópur fyrir Prêt-à-Porter.
National Society of Film Critics verðlaunin
- 2007: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
New York Film Critics Circle verðlaunin
- 2006: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
New York Film Critics, Online verðlaunin
- 2006: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
News & Documentary Emmy verðlaunin
- 2012: Tilnefndur sem besta upplýsingaprógrammið – löngu formi fyrir Brick City ásamt Marc Levin, Mark Benjamin, Sarah Barnett, Michael Klein og Evan Shapiro.
North Texas Film Critics Association verðlaunin
- 2006: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
Oklahoma Film Critics Circle verðlaunin
- 2006: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
Online Film & Television Association verðlaunin
- 2007: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
Online Film Critics Society verðlaunin
- 2007: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
Óskarsverðlaunin
- 2007: Verðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir The Last King of Scotland.
PGAverðlaunin
- 2014: Stanley Kramer verðlaunin fyrir Fruitvale Station ásamt Ryan Coogler og Nina Yang Bongiovi.
Peabody verðlaunin
- 2014: Verðlaun fyrir Brick City ásamt Marc Levin, Mark Benjamin, Sarah Barnett, Evan Shapiro, Lynne Kirby, Mala Chappble, Daphne Pinkerson, Kara Rozansky, Keith McQuirter, Jenner Furst, Vanessa Procopio, Daniel Praid og James Adolphus.
Phoenix Film Critics Society verðlaunin
- 2006: Verðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir The Last King of Scotland.
Razzie verðlaunin
- 2001: Tilnefndur sem versti leikari í aukahlutverki fyrir Battlefield Earth: A Saga of the Year 3000.
Sant Jordi verðlaunin
- 1989: Verðlaun sem besti erlendi leikari fyrir Bird og Good Morning, Vietnam.
Santa Barbara International Film Festival
- 2014: Kirk Douglas verðlaunin fyrir yfirburði í kvikmyndum.
- 2007: Riviera verðlaunin fyrir The Last King of Scotland.
Satellite verðlaunin
- 2013: Tilnefndur sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir The Butler.
- 2006: Verðlaun sem besti leikari í dramamynd fyrir The Last King of Scotland.
- 2006: Tilnefndur sem besti leikari í aukahutverki í seríu/míniseríu eða kvikmynd fyrir sjónvarp fyrir The Shield.
Screen Actors Guild verðlaunin
- 2014: Tilnefndur sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir The Butler.
- 2014: Tilnefndur sem besti leikhópur fyrir The Butler.
- 2007: Verðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir The Last King of Scotland.
- 2004: Tilnefndur sem besti leikari í sjónvarpsmynd eða míniseríu fyrir Deacons for Defense.
- 1995: Tilnefndur sem besti leikari í sjónvarpsmynd eða míniseríu fyrir The Enemy Within.
Southeastern Film Critics Association verðlaunin
- 2006: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
St. Louis Film Critics Association verðlaunin
- 2006: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
Toronto Film Critics Association verðlaunin
- 2006: Tilnefndur sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
Toronto International Film Festival
- 1993: International Critics´ verðlaunin (FIPRESCI) fyrir Strapped.
Vancouver Film Critics Circle
- 2007: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
Walk of Fame
- 16. apríl, 2007: Stjarna á Walk of Fame göngugötuna, staðsett á 6801 Hollywood Blvd.
Washington DC Area Film Critics Association verðlaunin
- 2006: Verðlaun sem besti leikari fyrir The Last King of Scotland.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 1,2 Patterson, John. "The bigger picture,". The Guardian, 20. april, 2002. Skoðað 13. júlí 2007
- ↑ 2,0 2,1 Inside the Actors Studio Geymt 6 desember 2008 í Wayback Machine, Bravo, skoðað 13. júlí, 2007.
- ↑ „Cal Poly Pomona“. CSU Mentor. Sótt 12. september 2008.
- ↑ Joshua Rich. "Spotlight: Forest Whitaker." Geymt 13 ágúst 2011 í Wayback Machine EW.com.
- ↑ Sager, Mike. "What I've Learned: Forest Whitaker." Esquire. February 26, 2007.
- ↑ Ævisaga Forest Whitaker á IMDB síðunni
- ↑ PSA for PETA PETA TV.
- ↑ „Hope North“. Hope North. Afrit af upprunalegu geymt þann apríl 20, 2010. Sótt 17. september 2010.
- ↑ „Actor Forest Whitaker campaigns for Barack Obama at Grand Rapids Community College“. The Grand Rapids Press. 9. október 2008. Sótt 14. janúar 2010.
- ↑ Michael Ausiello (25. janúar 2010). „Scoop: Forest Whitaker to headline 'Criminal Minds' spin-off!“. Entertainment Weekly. Afrit af upprunalegu geymt þann 28. janúar 2010. Sótt 7. apríl 2010.
- ↑ Chuck Barney (7. apríl 2010). „Criminal Minds proves actor Moore than pretty face“. Associated Press. Afrit af upprunalegu geymt þann 6. júní 2010. Sótt 7. apríl 2010.
- ↑ Andreeva, Nellie (17. maí 2011). „CBS renews 'CSI:NY', cancels 'Criminal Minds: Suspect Behavior'“. Deadline Hollywood. Sótt 17. maí 2011.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Forest Whitaker“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 6. desember 2011.
- Forest Whitaker á IMDb