Barnaleikritið Mjallhvít og dvergarnir sjö
Útlit
Mjallhvít og dvergarnir sjö | |
---|---|
EXP-IM 76 | |
Flytjandi | Róbert Arnfinnsson, Anna Kristín Þórarinsdóttir, Steindór Hjörleifsson, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Sigríður Hagalín, Jón Sigurbjörnsson, Árni Tryggvason, Rúrik Haraldsson, hljómsveit Jóns Sigurðssonar og hljómsveit Maj Sønsvold |
Gefin út | 1960 |
Stefna | Barnaleikrit með söngvum |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
Mjallhvít og dvergarnir sjö er 45-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1960. Tónlist er eftir Maj Sønstevold, þýðingu gerði Björn Bragi Magnússon og sögumaður og leikstjóri er Róbert Arnfinnsson. Hljómsveitir Jóns Sigurðssonar og Maj Sønstevold leika. Platan er hljóðrituð í mono. Hljóðritun fór fram í Ríkisútvarpinu. Mynd á forsíðu gerði Pedro. Platan var pressuð hjá AS Nera í Osló.
Persónur:
- Mjallhvít - Anna Kristín Þórarinsdóttir
- Prinsinn - Steindór Hjörleifsson
- Drottningin - Guðbjörg Þorbjarnardóttir
- Spegillinn - Sigríður Hagalín
- Veiðimaðurinn - Jón Sigurbjörnsson
- Dvergar - Árni Tryggvason, Steindór Hjörleifsson, Rúrik Haraldsson og Jón Sigurbjörnsson
Fyrra hljóðdæmið er tekið af upphafi plötunnar þegar sögumaðurinn segir frá drottningunni, móður Mjallhvítar. ⓘ
Síðari hljóðdæmið gerist við lok verksins þegar Mjallhvít og prinsinn halda brúðkaup. ⓘ