Ban Ki-moon
Ban Ki-moon | |
---|---|
반기문 | |
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna | |
Í embætti 1. janúar 2007 – 31. desember 2016 | |
Forveri | Kofi Annan |
Eftirmaður | António Guterres |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 13. júní 1944 Insei, japönsku Kóreu (nú Suður-Kóreu) |
Þjóðerni | Suður-kóreskur |
Maki | Yoo Soon-taek |
Börn | 3 |
Háskóli | Þjóðarháskólinn í Seúl Harvard-háskóli |
Starf | Stjórnmálamaður, ríkiserindreki |
Undirskrift |
Ban Ki-moon (f. 13. júní 1944) er suður-kóreskur stjórnmálamaður og ríkiserindreki sem var aðalritari Sameinuðu þjóðanna frá 1. janúar 2007 til ársins 2017. Ban var utanríkisráðherra Suður-Kóreu frá janúar 2004 til nóvember 2006.
Ban byrjaði að sækjast eftir aðalritaraembætti Sameinuðu þjóðanna í febrúar árið 2006. Fyrst um sinn áttu fáir von á því að hann myndi hljóta kjör í embættið en sem utanríkisráðherra Suður-Kóreu gat hann ferðast um öll ríkin í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í aðdraganda kosninganna til að vekja athygli á sér. Þann 13. október 2006 kaus allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna Ban áttunda aðalritara Sameinuðu þjóðanna. Hann tók við embættinu af Kofi Annan í byrjun næsta árs. Sem aðalritari stóð Ban fyrir ýmsum umbótum á friðargæslu og á atvinnusiðum Sameinuðu þjóðanna. Ban beitti sér sérstaklega fyrir baráttu gegn hlýnun jarðar og ýtti oft á eftir frekari aðgerðum gegn loftslagsbreytingum við George W. Bush Bandaríkjaforseta. Ban beitti sér einnig gegn stríðinu í Darfúr og tók þátt í að telja Omar al-Bashir forseta Súdan á að hleypa friðargæslusveitum Sameinuðu þjóðanna inn í landið.[1] Ban átti einnig þátt í því að gera Parísarsamkomulagið lagalega bindandi.
Ban lét af embættinu í lok ársins 2016 eftir að allsherjarþingið hafði kjörið António Guterres sem aðalritara þann 13. október.[2] Margir bjuggust við því að Ban myndi gefa kost á sér í forsetakosningum Suður-Kóreu árið 2017 en hann ákvað að bjóða sig ekki fram.[3][4] Þann 14. september 2017 var Ban kjörinn formaður siðanefndar Ólympiuleikanna.[5]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Ban Ki-Moon. „Það sem ég sá í Darfur“. Sameinuðu þjóðirnar. Sótt 10. september 2018.
- ↑ „António Guterres appointed next UN Secretary-General by acclamation“. UN News Centre. 13. október 2016. Sótt 9. september 2018.
- ↑ „With an Eye on South Korea's Presidency, Ban Ki-moon Seeks to Burnish his U.N. Legacy“. Foreign Policy. Sótt 2. janúar 2017.
- ↑ Cheng, Jonathan (1. febrúar 2017). „Ban Ki-moon Drops Out of South Korean Presidential Race“. Wall Street Journal. ISSN 0099-9660. Sótt 10. september 2018.
- ↑ https://www.olympic.org/news/ioc-elects-former-united-nations-secretary-general-ban-ki-moon-to-head-its-ethics-commission
Fyrirrennari: Kofi Annan |
|
Eftirmaður: António Guterres |