Fara í innihald

Todmobile

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Todmobile er íslensk popp-/rokkhljómsveit stofnuð af Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni, Andreu Gylfadóttur og Eyþóri Arnalds árið 1988. Fyrsta hljómplata þeirra, Betra en nokkuð annað, kom út fyrir jólin 1989 og fékk mjög góða dóma. Önnur plata sveitarinnar, Todmobile, kom út fyrir jólin 1990 og varð metsöluplata.

1993 ákvað hljómsveitin að hætta. Þorvaldur Bjarni og Andrea stofnuðu Tweety árið eftir og Eyþór hóf samstarf við unnustu sína, Móeiði Júníusdóttur, í dúettinum Bong.

1996 kom Todmobile aftur saman og gaf út diskinn Perlur og svín með lögum úr samnefndri kvikmynd. Eftir það kom hljómsveitin saman af og til. 2003 gaf hún út diskinn Sinfónía, með Sinfóníuhljómsveit Íslands og árið 2006 kom út sjötta breiðskífa þeirra, undir nafninu Ópus 6. Eyþór Ingi Gunnlaugsson gekk til liðs við sveitina eftir 2009.

Gestatónleikar

[breyta | breyta frumkóða]

Platan Úlfur (2014) var með gestainnlegg frá Jon Anderson (Yes) og Steve Hackett (Genesis) sem voru í progrokksveitum sem voru vinsælar á 8. áratugnum. Anderson og Hackett spiluðu með sveitinni á tónleikum árin 2013 og 2015 [1] [2]. Svo fékk Todmobile poppstjörnur frá 9. áratugnum sem gesti á tónleikum. Nik Kershaw gestur Todmobile árið 2016 í Hörpu. Hann og Midge Ure úr Ultravox hafa spilað tvívegis með sveitinni. Einnig hefur Toney Hadley úr Spandau Ballet gestað með sveitinni. [3]

Hljómplötur

[breyta | breyta frumkóða]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Gítargoðsögn stígur á svið með Todmobile Vísir, 14. janúar 2015
  2. ↑ Anderson syngur með Todmobile í kvöld Rúv, 15. nóvember 2013
  3. ↑ Todmobile og stjörnuregn Rúv, 14. október 2023