Fara í innihald

Húshjálpin (kvikmynd)

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá The Help (kvikmynd))
Húshjálpin
The Help
Auglýsingaplakat myndarinnar
LeikstjóriTate Taylor
HandritshöfundurTate Taylor
FramleiðandiChris Columbus

Michael Barnathan

Brunson Green
LeikararEmma Stone

Viola Davis

Octavia Spencer
FrumsýningFáni Bandaríkjana 10. ágúst 2011
Fáni Íslands 28. október 2011
Lengd146 mín.
TungumálEnska
AldurstakmarkLeyfð
Ráðstöfunarfé$25.000.000

Húshjálpin eða The Help er bandarísk kvikmynd frá árinu 2011 sem er byggð á samnefndri metsölubók eftir Kathryn Stockett frá árinu 2009. Tate Taylor skrifaði handritið og leikstýrti myndinni. Myndin fjallar um líf auðugra hvítra kvenna í Mississippi og þeldökkra þjóna þeirra. Myndin gerist í borginni Jackson í Mississippi-fylki, Bandaríkjunum og fara Emma Stone, Viola Davis, Octavia Spencer, Bryce Dallas Howard, Jessica Chastain, Sissy Spacek, Mike Vogel og Allison Janney með aðalhlutverkin.

Söguþráður

[breyta | breyta frumkóða]

Sagan gerist árið 1963 í Jackson, Mississippi og fjallar um unga hvíta konu sem kölluð er ,,Skeeter“ sem snýr aftur heim eftir útskrift til að byrja að vinna sem rithöfundur. Hún er mjög ósátt með kynþáttahatrið sem konurnar í kvenfélaginu sýna þernum sínum og ákveður að skrifa bók um það hvernig líf þeirra er. Hún nær að sannfæra þernuna Aibileen sem vinnur fyrir vinkonu hennar, Elizabeth Leefolt, um að segja sögu sína, með þeim skilyrðum að það sé nafnlaust og að þær passi að enginn komist að því að þær séu að hittast. Með tímanum ákveður besta vinkona Aibileen, Minny Jackson, líka að segja sína sögu og svo fylgja fleiri þernur á eftir. Myndin þykir sýna vel lífið hjá svörtu fólki í suðurríkjum Bandaríkjunum í kringum 1960 og hvernig hvíta fólkið kom fram við það. Skeeter kemst síðan að því hvað kom fyrir þernuna sem ól hana upp og það gefur henni hvatningu til að gefa út bókina. Þegar bókin kemur út verður hún mjög vinsæl og konurnar í bænum fara að pússla saman að bókin snýst um þær og slúðursögur þeirra. Skeeter fær að lokum starf sem rithöfundur í New York og svörtu þernurnar eru stoltar yfir því að hafa sagt sína sögu.

Gerð myndarinnar

[breyta | breyta frumkóða]

Framleiðslufyrirtækið DreamWorks keypti kvikmyndaréttindi á bókinni í mars 2010. Það var strax ákveðið að Emma Stone fengi aðalhluverkið sem ,,Skeeter“.  

Upptökur byrjuðu í júlí 2010 og kláruðust í október sama ár. Myndin var aðallega tekin upp í bænum Greenwood, Mississippi þar sem bærinn þótti sýna vel tíðarandann í kringum 1960. Sum atriði voru líka tekin upp í Jackson, Clarksdale og Greenville í Mississippi.

Walt Disney Studios Motion Pictures gáfu út myndina og hún var frumsýnd í kvikmyndahúsum þann 10. Ágúst 2011. Hún kom út á DVD og Blu-ray þann 6. Desember 2011.

Leikarar í The Help með Octaviu Spencer uppi á sviði þegar hún vann Óskarsverðlaun fyrir hlutverk sitt í myndinni

Myndinni var vel tekið af gagnrýnendum og er með 8,1 í einkunn á IMDB. The Help var tilnefnd til þriggja Óskarsverðlauna. Gagnrýnendur hrósuðu mest frammistöðu Violu Davis og hún vann Óskarsverðlaun fyrir hlutverk sitt í myndinni. Atriði Violu Davis og Octaviu Spencer fengu mjög jákvæða gagnrýni og var lýst sem mjög áhrifamikilum.

Helst var fundið að myndinni að hún væri ekki nógu lík bókinni.

Fyrirmynd greinarinnar var „The Help (film)“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 3. maí 2018.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.