Spendýr
Spendýr (fræðiheiti: Mammalia) eru flokkur seildýra í undirfylkingu hryggdýra sem einkennist af því að vera með mjólkurkirtla, sem kvendýrin nota til að framleiða mjólk til að næra ungviði; feld eða hár og innverminn líkama (heitt blóð). Heilinn stýrir blóðrásarkerfinu, þar á meðal hjarta með fjögur hólf. Um 5.500 tegundir spendýra eru þekktar og skiptast þær í um 1.200 ættkvíslir, 152 ættir og 26 ættbálka.[1]
Eiginleikar
[breyta | breyta frumkóða]Eins og nafnið gefur til kynna, þá er helsta einkenni spendýra að þau gefa afkvæmum sínum mjólk á spena, en kvendýr af flokki spendýra eru öll með mjólkurkirtla og nánast öll með spena (eða geirvörtur).[2] Aftur hefur nefdýraundirflokkurinn þar sérstöðu en kvendýr af þeim flokki eru með holur á kviðnum sem mjólkin seitlar út um í stað spena.
Flest spendýr fæða lifandi afkvæmi, en tegundir af undirflokki nefdýra verpa eggjum. Þó svo væri ekki væri þessi eiginleiki ekki einkennandi fyrir flokkinn því ýmis önnur hryggdýr, eins og t.d. gúbbífiskar og sleggjuháfar, fæða einnig lifandi afkvæmi.
Heilar allra spendýra eru með nýbörk, en hann er einkennandi fyrir flokkinn.
Flest spendýr eru landdýr, en sum lifa í vatni, m.a. sækýr, selir og hvalir.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Jón Már Halldórsson (20.4.2009). „Hvað eru til margar tegundir af spendýrum í heiminum?“. Vísindavefurinn.
- ↑ Jón Már Halldórsson (28.4.2003). „Hvað er það helsta sem einkennir spendýrin?“. Vísindavefurinn.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Jón Már Halldórsson (26.10.2004). „Hvert var fyrsta spendýrið?“. Vísindavefurinn.
- Jón Már Halldórsson (6.1.2005). „Hvernig aðlöguðust spendýr lífi í sjó og af hverju?“. Vísindavefurinn.
- Haukur Már Helgason (14.7.2021). „Hvaða spendýr syndir hraðast?“. Vísindavefurinn.
- Jón Már Halldórsson (18.4.2002). „Hvaða spendýr lifir lengst?“. Vísindavefurinn.
- Jón Már Halldórsson (8.1.2002). „Eru til einhver eitruð spendýr?“. Vísindavefurinn.
- Jón Már Halldórsson (3.5.2002). „Hvert er sjaldgæfasta spendýr í heimi?“. Vísindavefurinn.
- Páll Hersteinsson (18.4.2000). „Hvaða spendýr er með minnstu augun?“. Vísindavefurinn.
- Jón Már Halldórsson (5.2.2004). „Hvort eru nefdýr spendýr eða skriðdýr?“. Vísindavefurinn.