Simon Harris
Simon Harris | |
---|---|
Forsætisráðherra Írlands | |
Núverandi | |
Tók við embætti 9. apríl 2024 | |
Forseti | Michael D. Higgins |
Forveri | Leo Varadkar |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 17. október 1986 Greystones, County Wicklow, Írlandi |
Þjóðerni | Írskur |
Stjórnmálaflokkur | Fine Gael |
Maki | Caoimhe Wade (g. 2017) |
Börn | 2 |
Háskóli | Tækniháskólinn í Dyflinni |
Simon Harris (f. 17. október 1986) er írskur stjórnmálamaður sem er núverandi forsætisráðherra Írlands (Taoiseach) og leiðtogi stjórnmálaflokksins Fine Gael. Harris tók við embætti eftir afsögn Leo Varadkar í mars árið 2024 og er yngsti forsætisráðherra í sögu Írlands.
Æviágrip
[breyta | breyta frumkóða]Simon Harris er fæddur 1986. Hann er alinn upp í strandbænum Greystones, skammt frá höfuðborginni Dyflinni. Hann gekk til liðs við ungliðahreyfingu Fine Gael þegar hann var sextán ára og komst þar hratt til metorða.[1]
Harris var kjörinn á írska þingið þegar hann var aðeins 24 ára gamall. Hann var gerður heilbrigðisráðherra landsins árið 2016. Í ráðherratíð hans var bann við þungunarrofi afnumið á Írlandi, auk þess sem hann hélt utan um fyrstu viðbrögð landsins við kórónuveirufaraldrinum árið 2020.[2] Harris varð síðar háskólamálaráðherra ríkisstjórn Leo Varadkar.[3]
Varadkar sagði óvænt af sér af sér sem leiðtogi Fine Gael og forsætisráðherra í mars árið 2024. Harris var í kjölfarið kjörinn nýr leiðtogi flokksins, án mótframboðs.[2] Harris þykir svipaður Varadkar í skoðunum, en hann hefur jafnframt orð á sér fyrir að vera virkur á samfélagsmiðlum sem njóta vinsælda meðal ungs fólks á borð við Instagram og TikTok.[3]
Írska þingið samþykkti Harris sem nýjan forsætisráðherra þann 9. apríl 2024.[4]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Markús Þ. Þórhallsson (9. apríl 2024). „Simon Harris verður forsætisráðherra í dag“. RÚV. Sótt 12. apríl 2024.
- ↑ 2,0 2,1 Rafn Ágúst Ragnarsson (24. mars 2024). „Simon Harris nýr leiðtogi Fine Gael“. Vísir. Sótt 24. mars 2024.
- ↑ 3,0 3,1 Freyr Rögnvaldsson (25. mars 2024). „Simon Harris verður næsti forsætisráðherra Írlands – Afsögn Varadkar sögð eins og þruma úr heiðskýru lofti“. Samstöðin. Sótt 12. apríl 2024.
- ↑ Atli Ísleifsson (9. apríl 2024). „Yngsti forsætisráðherrann í sögu landsins“. Vísir. Sótt 12. apríl 2024.
Fyrirrennari: Leo Varadkar |
|
Eftirmaður: Enn í embætti |