Qeqertalik
Útlit
Qeqertalik er sveitarfélag á Grænlandi stofnsett formlega 1. janúar 2018 þegar Qaasuitsup var skipt upp í tvennt. Íbúar eru um 6.500 og flatarmál 62.400 km². Ráðhúsið liggur í Aasiaat. Sveitarstjóri er Ane Hansen frá Inuit Ataqatigiit.
Landfræði
[breyta | breyta frumkóða]Qeqertalik-sveitarfélag liggur í suðri að Qeqqata og í norður er Avannaata, til austurs liggur innlandsís Grænlands og sveitarfélagið Sermersooq.
Qeqertalik samanstendur af bæjum kringum Diskó-flóa, en norðurströnd hans og Nuussuaq-skagi tilheyra þó næsta sveitarfélagi fyrir norðan Avannaata.
Bæir og byggðir
[breyta | breyta frumkóða]Qeqertalik er skipt upp í 4 svæði:
- Aasiaat
- Aasiaat (Egedesminde)
- Akunnaaq
- Kitsissuarsuit (Hunde Ejlande)
- Kangaatsiaq
- Qasigiannguit
- Qasigiannguit (Christianshåb)
- Ikamiut
- Qeqertarsuaq
- Qeqertarsuaq (Godhavn)
- Kangerluk
útvísandi hlekkir
[breyta | breyta frumkóða]- heimasíða sveitarfélagsins Geymt 17 nóvember 2020 í Wayback Machine
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Qeqertalik.