Hlébarði
Hlébarði Tímabil steingervinga: Seint á plíósen eða snemma á pleistón fram á okkar daga | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Panthera pardus Linnaeus, 1758 | ||||||||||||||
Hlébarði (fræðiheiti: Panthera pardus) er ein af fimm tegundum innan ættkvíslar stórkatta (Panthera). Hinar fjórar tegundirnar eru tígrisdýr, ljón, jagúar og snjóhlébarði. Hlébarðinn er sá stórköttur sem er í minnstri útrýmingarhættu. Hlébarðategundinni hefur verið skipt í meira en 30 deilitegundir, sem eru misstórar, þær stærstu eru flestar afrískar.
Heimkynni
[breyta | breyta frumkóða]Hlébarði er útbreiddasta tegund stórra kattardýra. Þeir eru um alla Afríku, á Arabíuskaganum, í Íran, Mið-Asíu, Kína, á Indlandi, Sri Lanka og syðst í Síberíu. Þeir halda sig við laufskóga og kjarrlendi, eiga auðvelt með að klifra í trjám og geta dregið bráð sína upp í tré til þess að hindra að önnur dýr steli bráðinni.
Útlit
[breyta | breyta frumkóða]Hlébarðar eru með langan og mjóan skrokk sem er sterkur og vöðvastæltur, hafa stutta fætur og langa rófu sem þeir nota til þess að halda jafnvægi þegar þeir eru uppi í trjám. Fullorðnir hlébarðar geta verið frá 50 kg og upp í allt að 120 kg á þyngd, þeir eru tveir til þrír metrar á lengd ef rófan er mæld með en rófan er oftast um 90 cm löng. Kvenkyns hlébarðar eru oftast um tveir þriðju af stærð karlkyns hlébarða. Hlébarðinn er með rósettumynstur á feldi sínum líkt og jagúarinn en munurinn er sá að rósettublettirnir á hlébarðanum eru minni. Feldurinn getur verið snöggur eða þykkur, það fer allt eftir því hvar hlébarðinn lifir.
Mataræði
[breyta | breyta frumkóða]Hlébarðinn er kjötæta og er fæða hans aðallega antilópur og önnur hjarðdýr grasbíta, einnig villisvín. En þeir éta einnig minni dýr eins og kanínur og stór skordýr. Hlébarðinn veiðir á næturnar. Þeir byrja á því að fela sig, laumast upp að bráðinni og stökkva á hana við fyrsta tækifærið. Þeir drepa bráð sína með einu snöggu biti í háls.
Uppeldi
[breyta | breyta frumkóða]Meðgöngutími hlébarða er um þrír mánuðir og eignast kvendýrið tvo til fjóra hvolpa. Hvolparnir fæðast blindir en fá sjónina eftir um níu daga. Þeir fara að heiman þegar þeir eru um 13 til 18 mánaða gamlir. Hlébarðar verða 12 til 15 ára gamlir úti í náttúrunni en það fer mikið eftir búsvæðum og fæðu.