1415
Útlit
(Endurbeint frá MCDXV)
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1415 (MCDXV í rómverskum tölum)
Atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- Árni Ólafsson Skálholtsbiskup kom til landsins á eigin skipi og tók við biskupsembættinu og hirðstjórn, en Björn Jórsalafari hafði gegnt hirðstjóraembættinu í umboði Árna frá 1413.
- Fyrsta þorskastríðið hefst með því að Eiríkur af Pommern bannar öllum útlendingum siglingar til Íslands, sem hefur raunar engin eða öfug áhrif.
- Enska öldin í sögu Íslendinga talin hefjast.
- Vigfús Ívarsson sigldi til Englands frá Hafnarfirði og hafði með sér 60 lestir skreiðar og mikla fjármuni aðra. Hann heimsótti gröf hins helga Tómasar Becket í Kantaraborg og gaf þar mikla peninga til bænahalds fyrir sér, konu sinni og börnum.
- Sex erlend skip lágu á Hafnarfirði og hafði eitt þeirra rænt skreið í Vestmannaeyjum og á Rosmhvalanesi, að því er segir í Lögmannsannál.
Fædd
Dáin
- Björn Einarsson Jórsalafari. Hann er sagður hafa andast í Hvalfirði.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 4. júlí - Gregoríus XII páfi sagði af sér á kirkjuþinginu í Konstans. Kirkjuþingið hafði samþykkt að allir páfarnir þrír, Gregoríus og mótpáfarnir Jóhannes XXIII og Benedikt XIII, skyldu segja af sér svo að unnt yrði að sameina kirkjuna að nýju. Gregoríus varð við því en hinir ekki og var Jóhannes fangelsaður en Benedikt bannfærður og afsettur 1517. Þar með lauk sundrungu kaþólsku kirkjunnar, sem staðið hafði frá 1378.
- 6. júlí - Jan Hus (Jóhann Húss), tékkneskur siðbótarmaður, var dæmdur fyrir villutrú á kirkjuþinginu í Konstans og brenndur á báli sama dag. Hann hafði verið kallaður til Konstans til að gera grein fyrir kenningum sínum en gafst ekki tækifæri til þess því hann var fljótlega handtekinn og fékk ekki að verja sig fyrir réttinum.
- 25. október - Englendingar sigruðu Frakka í orrustunni við Agincourt og hefur sá sigur að miklu leyti verið þakkaður bogaskyttum Englendinga.
Fædd
- 3. maí - Cecily Neville, móðir Englandskonunganna Játvarðar 4. og Ríkharðar 3. (d. 1495).
- 21. september - Friðrik 3., keisari hins Heilaga rómverska ríkis (d. 1493).
Dáin
- 6. júlí - Jan Hus, tékkneskur siðbótamaður, (f. 1369).
- 19. júlí - Filippa af Lancaster, Portúgalsdrottning, kona Jóhanns 1. (f. 1359).