1238
Útlit
(Endurbeint frá MCCXXXVIII)
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1238 (MCCXXXVIII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Eldgos undan Reykjanesi, óvíst hvar.
- Apavatnsför. Sturla Sighvatsson náði Gissuri Þorvaldssyni á sitt vald með svikum.
- 21. ágúst - Örlygsstaðabardagi var háður í Skagafirði. Þar féllu 56 menn.
- Sigvarður Þéttmarsson var vígður biskup í Skálholti og Bótólfur biskup á Hólum.
Fædd
Dáin
- 21. ágúst - Sighvatur Sturluson, féll í Örlygsstaðabardaga (f. 1170).
- 21. ágúst - Sturla Sighvatsson, féll í Örlygsstaðabardaga (f. 1199).
- 21. ágúst - Kolbeinn Sighvatsson, Markús Sighvatsson og Þórður krókur Sighvatsson drepnir eftir Örlygsstaðabardaga.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 28. september - Jakob 1., konungur Aragóníu, náði borginni Valensíu úr höndum Mára.
- Mongólar náðu smábænum Moskvu á sitt vald.
- Byrjað var að reisa Alhambra-höllina í Granada á Spáni.
- Simon de Montfort gekk að eiga Elinóru, systur Hinriks 3. Englandskonungs.
Fædd
- 1. maí - Magnús lagabætir konungur Noregs (d. 1280).
Dáin
- Jóhanna Skotlandsdrottning, kona Alexanders 2. (f. 1210).